fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Starfsmenn Sorpu afsakandi og þreyttir í laugardagsbasli Baldurs – „Ég hefði betur verið heima í dag“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 20. apríl 2026 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þannig vildi til laugardaginn 11. apríl að þeim tímapunkti í heimilisrekstrinum var náð að óumflýjanlegt var að fara í Sorpuferð. Kerran var hlaðin af því sem fellur til á nútímalegu fjölskylduheimili en á ekki heima í grenndargámi. Góssið var vandlega bundið niður.“ 

Þannig lýsir Baldur Guðmundsson, fjölmiðlamaður og fjölskyldufaðir búsettur í Kópavogi upphafi ferðar sinnar á Sorpu í grein sinni á Vísi, ferð sem átti eftir að taka langan tíma og ferð á fleiri en eina móttökustöð Sorpu og það þrátt fyrir að markmið breytinga hjá fyrirtækinu í mars síðastliðnum hafi verið að „einfalda móttöku, stytta biðtíma og bæta nýtingu á svæðunum. Þær byggja á vinnu starfsfólks SORPU, sveitarfélaganna og stjórnar SORPU.“

Þrír starfsmenn höfðu lítið að gera nema vísa fólki annað

Móttökustöðin á Dalvegi í Kópavogi er næst heimili Baldurs og byrjaði hann því ferðina þar, þrátt fyrir að liti út að stöðin væri lokuð. Tveir starfsmenn litu á farminn og voru sammála um að Baldur ætti ekki erindi þangað, útskýrðu þeir afsakandi fyrir honum breytingarnar og vísuðu honum á Sævarhöfða eða á Vellina í Hafnarfirði og bættu við að hann mætti búast við langri biðröð. Þegar Baldur ákvað að binda hlassið betur bauðst þriðji starfsmaðurinn til að aðstoða hann.

„Hann hafði fátt annað að gera, sagði hann, en að vísa fólki frá. Hann bætti svo afsakandi við að þessar breytingar hefðu ekki verið hans hugarfóstur. Það hafði reyndar ekki hvarflað að mér.“ 

Samkvæmt frétt sem birtist á vef Sorpu í mars er á móttökustöðvum á Dalvegi og í Jafnaseli ekki lengur tekið við „rúmfrekum úrgangi“. Á bannlistanum eru meðal annars húsgögn, timbur, gler, rúmdýnur, reiðhjól, dekk og flísar. Stöðvarnar voru notaðar af of mörgum, segja þeir.

Klukkutíma bið eftir að geta hent rusli

Þegar Baldur mætti á Sævarhöfða stóðust orð starfsmannsins; þar var löng bílaröð og eftir um hálftíma bið var Baldri vísað áfram innan stöðvarinnar af þreyttum en liprum starfsmanni.

Biðröðin á Sævarhöfða.

„Ég hefði betur verið heima í dag,“ sagði hann einlægur í stuttu samtali við Baldur um breytingarnar. Innan stöðvarinnar mátti Baldur svo bíða í annan hálftíma eftir rampi áður en hann gat tekið til við að henda sorpinu.

„Ég er ekki viss um að starfsfólkið sem vinnur á Sævarhöfða sé sammála því að markmiði Sorpu um að einfalda móttöku hafi verið náð. Ég get sjálfur vottað um að þetta er ekki til þess fallið að stytta biðtíma og mér er til efs að nokkur geti með góðri samvisku kvittað undir það að þessi tilhögun sé til þess fallin að bæta nýtingu á svæðunum.“ 

Hann segir það blasa við að markmiðin með breytingunum hafa mistekist.

„Einhver gæti fullyrt að þau fælu í sér gaslýsingu fyrir notendur þjónustunnar. Manni er sagt að þetta sé til þess að gera hlutina betri þegar reynsla notenda er sú að þeir eru miklu verri. Mín upplifun er sú að um hreina þjónustuskerðingu sé að ræða.“ 

Segir Baldur illskiljanlegt hvernig lausnin við yfirfalli á litlum stöðvum geti falist í því að loka og vísa fólki á stöðvar sem geta ekki tekið við yfirfallinu. Veltir hann fyrir sér hvort ekki hafi komið til greina að hafa rýmri opnunartíma á þessum stöðvum. Bendir hann á að ný móttökustöð er í undirbúningi við Lambhagaveg, í námunda við Korputorg. Þegar hún opni muni stöðvunum á Dalvegi og Jafnaseli vera lokað endanlega og svo verði skellt í lás á Sævarhöfða.

„Við það lengist akstur drjúgs hluta íbúa með sorp enn frekar. Þær lokanir verða sennilega til þess að stórbæta þjónustuna.“ 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Brotist inn í kirkju

Brotist inn í kirkju
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið