fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Björn Valur ósáttur og gagnrýnir Ingu Sæland – „Hver stendur með kennurum – ef einhver?“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 20. apríl 2026 18:00

Björn Valur Gíslason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Valur Gíslason, skipstjóri og fyrrverandi formaður þingflokks VG, segir kennara þurfa að þola neikvæða og óréttláta umræðu en enginn virðist vilja koma þeim til varnar.

Þetta kemur fram í aðsendum pistli á akureyri.net. Björn Valur segir að vegið hafi verið að starfsheiðri kennara og menntamálaráðherra leggi meira upp úr skoðanakönnunum en faglegum niðurstöðum sérfræðinga:

„Grunnskólakennarar hafa mátt þola mikla og neikvæða umræðu um störf sín að undanförnu, mest þó frá menntamálaráðherrum Flokks fólksins, sér í lagi þó formanni flokksins. Vegið hefur verið ítrekað að starfsheiðri kennara, fagmennsku þeirra og sérfræðiþekkingu og því jafnvel haldið fram að þeim hafi í grundvallaratriðum mistekist að koma stórum hluta nemenda skammlaust í gegnum 10 ára skólagöngu. Ráðherra hefur að undanförnu hæðst að kennurum, talað niður til þeirra, gert lítið úr þeim, efast um heilindi þeirra og snúið út úr starfsheitum forystufólks samtaka kennara svo fátt eitt sé til talið. Niðurstöðum gagna og rannsókna á námi og skólastarfi er snúið á haus og/eða þær túlkaðar á versta veg, að því er virðist í þeim tilgangi einum að ala á tortryggni gagnvart kennurum og skólastarfi. Ofan í þetta tilkynnti svo ráðherra nýlega um veigamiklar breytingar á skólakerfinu, sér í lagi námsmati, án eðlilegs samráðs við fagfólk og sérfræðinga á þeim sviðum, hvað þá að upplýsa um hvernig þær breytingar eiga að vinnast eða taka gildi. Þess í stað hefur ráðherra ákveðið að taka almennar skoðanakannanir framar viðurkenndum rannsóknum sérfróðra aðila á menntamálum á einstökum þáttum skólastarfsins. Boðaðar breytingar ganga síðan þvert á það starf sem unnið hefur verið í skólum á undanförnum árum og stendur reyndar enn yfir í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, megin undirstofnun ráðuenytisins í menntamálum.“

Björn Valur undrast hvað kennarar hafi fengi lítinn stuðning í þessari orrahríð. Hann spyr hverju það valdi og hvað foreldrum, sveitarstjórnarfólki og þingmönnum finnist um framgöngu Ingu Sælands menntamálaráðherra.

„Því þegir þetta fólk þunnu hljóði þegar vegið er svo harkalega að sérfræðiþekkingu og starfsheiðri þessa mikilvæga fagfólks sem kennarar eru?“

Pistilinn í heild má lesa hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slasaður einstaklingur sóttur í Davíðsgjá á Þingvöllum

Slasaður einstaklingur sóttur í Davíðsgjá á Þingvöllum