

Arnór Heiðarsson, forstöðumaður þjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, segir tvo menn hafa truflað aðalfund KFUM og KFUK á laugardag með öskrum og dónaskap. Hafi þeir gargað að kynin væru aðeins tvö og að félagið væri að fara frá grunngildum kristninnar. Ekki ætti að taka við börnum í sumarbúðir sem væru ekki annað hvort drengir eða stúlkur.
Arnór greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum. Segir hann það ekki að ástæðulausu að fólk tali um bakslag í baráttu hinsegin fólks. Árásirnar komi upp aftur og aftur, meðal annars frá Miðflokknum.
Byrjar hann pistil sinn á að reifa það þegar hann var formaður í stjórn Kaldársels fyrir 11 árum. Þá hafi hann farið fram á það við skrifstofu KFUM og KFUK að flokkanir í sumarbúðunum yrðu auglýstir fyrir öll kyn, sem var gert, fyrst á landinu. En Arnór hafði tekið eftir að sum börn sætu eftir.
„Ástæða þess að mér fannst þetta mikilvægt var að sumarið áður hafði ég verið forstöðumaður á Leikjanámskeiði í Kaldárseli. Þar kom móðir að sækja barn og var með lítið systkini með sér, sem þó hefði vel getað verið þátttakandi á námskeiðinu,“ segir hann. „Ég gaf mig á tal við móðurina, hvern er verið að sækja og heilsaði barninu. Þegar ég heilsaði því stóð ég mig að því að ég hafði ekki hugmynd um það hvort barnið væri stelpa eða strákur. Móðirin sá strax að ég áttaði mig ekki alveg á í hvorn fótinn ég átti að stíga, kímdi aðeins og hallaði sér upp að mér og sagði: „Þú notar hún“. Hvað það var sem olli því að kyn barnsins var svona óskilgreint veit ég ekki, hvort hún hafi verið trans stelpa, intersex eða hvað annað veit ég ekki og það skiptir ekki máli. En allavega, þá var persónufornafnið komið og málið leyst.“
Sagði móðirin honum að barnið treysti sér ekki til að vera í sumarbúðunum, var ekki viss hvort hún passaði þar inn og óttaðist að vera strítt. Þess vegna héldi hún sig bara heima.
„Þetta þótti mér algjörlega ótækt. Það eru öll börn velkomin í sumarbúðir. Öll börn eiga rétt á því að koma og eiga áhyggjulausa og fallega dvöl í faðmi Kaldársels,“ segir Arnór. „Síðan þessi breyting varð hefur orðið ör breyting á því að allskonar börn koma í sumarbúðirnar okkar og starfsfólkið okkar er líka allskonar. Mér þykir gríðarlega vænt um þessa þróun og ég vil alls ekki breyta henni.“
Á laugardag hafi Arnór setið aðalfund KFUM og KFUK sem biskup Íslands opnaði með ávarpi. Segir hann að góður andi hafi verið á fundinum þar sem verið var að fara yfir hefðbundin störf.
„Undir liðnum önnur mál birtust tveir menn sem höfðu ekki setið fundinn. Þeirra markmið var að öskra, garga og vera með dónaskap,“ segir Arnór. „Meðal annars hélt annar þeirra því fram að félagið væri að færa sig frá grunngildum kristninnar, að kynin væru bara tvö og það væri rangt af okkur að bjóða upp á flokka fyrir öll kyn. Að félagið hefði fallið í þessa gryfju til að þóknast pólitíkinni til að fá hærri styrki.“
Eitt hafi þó verið ljótast. Það er að annar maðurinn hafi viljað að samtökin tækju ekki við öllum börnum í sumarbúðirnar.
„Að hans mati eigum ekki að taka á móti öllum börnum í sumarbúðir. Að hans mati eigi ekki öll börn sama rétt til að fá að tilheyra, vera þau sjálf og fá að kynnast Guði á sínum forsendum,“ segir Arnór.
Reifar hann það að hafa verið í kirkjustarfi í 20 ár. Í upphafi hafi verið algeng lífsskoðun að samkynhneigð væri synd. Fólk þyrfti að breyta sér eða lifa í synd.
„Nú kvarta þeir sem áður útilokuðu yfir því að hafa ekki lengur frelsi til að útiloka,“ segir Arnór. „Munurinn liggur í því að regnbogafáninn krefst þess eins að fólk fái að vera til eins og það er. Það er mikil betrumbæting frá því sem áður var.“
Segir hann það ekki að ástæðulausu sem talað sé um bakslag í baráttu hinsegin fólks. Þessi gamaldags viðhorf séu að rísa upp aftur og aftur og það sé vont að sjá.

„Ég var sjálfur með nokkuð íhaldssamar skoðanir við upphaf menntaskólagöngu minnar og þegar ég settist á rökstóla við frjálslyndara fólk skildi ég oft ekki af hverju þau urðu svona reið við mig. Nú þegar ég tilheyri þessum frjálslynda væng, sem talar fyrir frelsi og að allir fái að tilheyra, skil ég vel reiðina sem ég vakti á sínum tíma,“ segir Arnór. „Ég er tilbúinn að ræða stjórnmál við nánast öll tilefni, hvort sem það eru menntamál, loftslagsmál, ESB, Borgarlínan, vindmyllur eða veggjöld. En þegar kemur að því að ræða tilvistarrétt fólks og rétt þeirra til að tilheyra finn ég að þolinmæði mín er mun minni og ég get eingöngu rætt þetta í litlum hóp við mína allra bestu vini. Ég er ekki til í að gefa mikið eftir í þessari umræðu.“
Segir hann ákveðinn flokk vekja þessa umræðu upp aftur og aftur, og ekki þarf að lesa djúpt á milli línanna til að sjá að það er Miðflokkurinn. En nýlega réðist varaformaðurinn, Snorri Másson, á regnbogafánann og uppskar hörð viðbrögð.
„Sá flokkur hefur vakið athygli á því að við eigum að vera duglegri að flagga íslenska fánanum. Því er ég hjartanlega sammála og íslenski fáninn á einmitt að standa fyrir samfélag þar sem öll börn eru örugg, en eitt þarf ekki að útiloka annað og það er mikilvægt að sýna með áþreifanlegum hætti að fjölbreytni er velkomin,“ segir Arnór að lokum. „Ég fann það í Kaldárseli að það er mikilvægt að það sé sýnilegt og á hreinu að í sumarbúðunum okkar eru öll börn velkomin og örugg. Hjá okkur geta þau fengið skjól og hjá okkur eru þau örugg til að lifa í leik og þroskast í trú.“