fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Staðfesta ráðningu á eftirmanni Iraola

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 20. apríl 2026 16:19

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

AFC Bournemouth hefur staðfest ráðningu Marco Rose sem nýs aðalþjálfara félagsins.

Rose, sem er 49 ára, skrifar undir þriggja ára samning og mun taka við liðinu að loknu tímabilinu 2025/26. Hann kemur til félagsins með mikla reynslu úr evrópskum toppfótbolta, en hann hefur áður stýrt liðum á borð við Red Bull Salzburg, Borussia Dortmund, Borussia Mönchengladbach og RB Leipzig.

Andoni Iraola ákvað að hætta störfum að loknu tímabili.

Bournemouth leggur þó áherslu á að núverandi tímabil sé enn í fullum gangi og að fókusinn sé á að klára það með sterkum hætti. Liðið er á góðu skriði þessa dagana og hefur verið taplaust í 13 leikjum.

Forráðamenn félagsins segjast hlakka til að taka á móti Rose á Vitality Stadium í sumar þegar hann tekur formlega við starfinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London