fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Segir heilt hverfi borgarinnar búa í óvissu – „Meiri þrengsli, lengri ferðatíma og endalausar tafir“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 20. apríl 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórir Garðarsson segir stóran hluta borgarbúa búa við óvissu um hvernig samgöngur til og frá hverfi þeirra eigi að vera skipulagðar til framtíðar með tilkomu borgarlínunnar.

„Grafarvogsbúar fá ekki skýra mynd af því hvernig þessar lykilæðar verða skipulagðar til framtíðar, þrátt fyrir að breytingarnar muni hafa bein áhrif á daglegt líf þeirra,“ 

segir Þórir, sem er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi, í grein sinni á Vísi. Segir hann skort á skýrum svörum valda íbúum áhyggjum.

Bendir hann á að um er að ræða verkefni upp á hundruð milljarða sem „á að breyta lífi fólks. Í slíkum aðstæðum ætti að liggja skýrt fyrir hvernig það bætir stöðuna en ekki að gera hana verri.“

„Gert er ráð fyrir að Borgarlínan fari að stórum hluta í sérrými, jafnt í Grafarvogi sem annars staðar. En slíkt rými verður ekki til úr engu. Á jafn mikilvægum samgönguæðum eins og Höfðabakka og Gullinbrú verður það ekki gert nema með einum hætti: að taka rými frá núverandi umferð og þrengja að henni.

Fyrir íbúa í Grafarvogi þýðir þetta einfaldlega meiri þrengsli, lengri ferðatíma og endalausar tafir. Nú þegar er reyndar byrjað að þrengja að umferð í og úr Grafarvogi með arfavitlausum aðgerðum á Höfðabakka. Umferðin hefur þyngst og flæði versnað. Strætó situr fastur í sömu umferð eins og aðrir, sem leiðir til lengri ferðatíma og lakari þjónustu. Hugmyndafræðin á bak við þessa tafastefnu liggur fyrir: að gera notkun einkabílsins svo óbærilega að Borgarlínunni verði tekið fagnandi.“ 

Segir Þórir það stöðuna kýrskýra fyrir íbúa Grafarvogs:

„Ef lausnin felst í því að þrengja að umferð löngu áður en meintur valkostur kemst í gagnið, þ.e. Borgarlínan, þá er hún engin lausn.“ 

Telur hann því eðlilegt að hafna alfarið hugmyndum um Borgarlínuna í núverandi mynd.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Brotist inn í kirkju

Brotist inn í kirkju
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf