fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 12:25

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hagar eru komnir í innkaupasasamstarf við danska smásölufyrirtækið Salling Group, sem er stærsti aðilinn á dagvörumarkaði í Danmörku. Samstarfið með Salling Group býður upp á fjölda tækifæra og gerir Högum kleift að bjóða landsmönnum upp á lægra verð, aukið vöruúrval, og enn betri gæði en fyrr í verslunum félagsins. Kemur þetta fram í tilkynningu.

Með samstarfinu fá verslanir Bónus og Hagkaups meðal annars aðgang að breiðu vöruúrvali Salling Group, en félagið rekur yfir 2.100 verslanir í Danmörku, Þýskalandi, Póllandi og Eystrasaltslöndunum. Á heimamarkaði Salling í Danmörku rekur félagið þekktar verslunarkeðjur, svo sem Netto, føtex og Bilka, auk þess að reka Netto víðar í Evrópu og Rimi í Eystrasaltslöndunum.

Það hefur ávallt verið keppikefli okkar að ná árangri í innkaupum og tryggja þannig viðskiptavinum sem allra best vöruverð. Samstarf okkar við Salling er stærsta skref sem við höfum stigið á þessu sviði í áratugi og markar þáttaskil í matvöruverslun á Íslandi. Salling hefur ákveðna yfirburði á danska markaðnum, hvað varðar stærð, innkaupagetu og fjölbreytni vörulína, en samstarfið veitir okkur aðgang að fjölbreyttu vöruúrvali sem þekkist víða í Evrópu. Fyrir neytendur á Íslandi þýðir þetta annars vegar lægra verð á hundruðum vara og hins vegar aukið úrval af vörum af miklum gæðum. Við erum stolt af því að geta lagt okkar enn frekar af mörkum í baráttunni við verðbólguna, sem hefur sjaldan verið mikilvægara en nú, “ segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga.

Fyrstu vörurnar eru nú þegar komnar í hillur hjá Bónus og Hagkaup, en úrvalið mun stækka ört á næstu mánuðum og verða fleiri en þúsund vörunúmer í boði innan nokkurra mánaða. Vörurnar sem um ræðir eru meðal annars undir merkjum á borð við Salling, ØKO, FRI, Princip og Budget – vörulínur sem eru þekktar fyrir gott verð, fjölbreytt úrval, og mikil gæði. Fjöldinn allur af vörum Salling bera viðurkenndar gæðavottanir og næringarmerkingar sem þekkjast vel á Norðurlöndunum, svo sem Lykillinn, Ø-merkið fyrir lífræna vottun og norræna umhverfismerkið Svanurinn.

Sem fyrr segir veitir samstarfið verslunum Haga undir merkjum Bónus, Hagkaups og Olís, aðgang að nýju og fjölbreyttu úrvali af vörum sem hafa notið mikillar vinsælda í nágrannalöndum og bætir innkaupsverð félagsins í fjölda vöruflokka. Markmið Haga er að nýta þennan ávinning til að bjóða enn betri verð í verslunum félagsins, sem og að auka vöruúrval og gæði.

Við erum afar ánægð með samstarfið við Haga og sjáum í því mikil tækifæri. Hagar eru, líkt og Salling Group, leiðandi fyrirtæki á sínum markaði og leggja ríka áherslu á að bjóða viðskiptavinum sínum fjölbreytt vöruúrval og samkeppnishæf verð. Ég vil þakka Högum það traust sem þau sýna okkur og legg áherslu á að við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að standa undir því, til hagsbóta fyrir neytendur á Íslandi,“ segir Anders Hagh, forstjóri Salling Group.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Með glóðarauga á báðum augum og nefbrot eftir árás á Hverfisgötu

Með glóðarauga á báðum augum og nefbrot eftir árás á Hverfisgötu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“