

„Sterkur grunur er um að hér sé um viljaverk að ræða,“ segir í færslu á Facebook-síðu Animalíu en samkvæmt upplýsingum DV er um að ræða hund og kött.
„Við viljum biðja alla nálægt að halda dýrum sínum inni og hafa augun vel opin fyrir pylsum/pylsubitum á glámbekk. Frábært væri ef íbúar/gestir á svæðinu gerðu sér gönguferð til að leita betur á svæðinu til að koma í veg fyrir að fleiri dýr verði fyrir eitrun,“ segir enn fremur.
Bent er á það í færslunni að frostlagareitrun sé mjög alvarleg og valdi hratt óafturkræfri nýrnabilun.
„Ef þig grunar að dýr þitt hafi innbyrt frostlög þarf það að komst undir læknishendur undir eins. Um leið og einkenni gera vart við sig er almennt of seint til að grípa inn í ferlið. Ef pylsur eða annað grunsamlegt (t.d. fiskiflök eða annar matur) finnast á glámbekk á svæðinu þarf að farga því undir eins.“
Í færslu á samfélagsmiðlum um helgina lýsti hundaeigandi í Kjós því hvernig hundurinn hans byrjaði að veikjast um miðnætti 10. apríl. Ældi hundurinn meðal annars pylsubitum sem hann hafði komist í eftir að hafa sloppið út fyrir lóðina fyrr um daginn. Hundurinn drapst um kvöldmatarleytið daginn eftir. Óskaði hundaeigandinn eftir því að íbúar á svæðinu skoðuðu eftirlitsmyndavélar við bústaði sína.