fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
Pressan

Ekki henda bananahýðinu – Settu það í vatnsglas

Pressan
Laugardaginn 21. mars 2026 17:30

Bananar eru bæði næringarríkir og bráðhollir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Banani er gómsætur ávöxtur sem býr yfir mörgum góðum eiginleikum en hann er ekki bara góður fyrir líkama okkar því það er hægt að nota hann til margs annars á heimilinu. Þetta þýðir að þú hefur tækifæri til að nota hann allt fram á síðustu stund.

Flestir henda bananahýðinu þegar búið er að borða ávöxtinn en það er hægt að gefa því „annað líf“ áður en það endar í ruslatunnunni.

Aðferðin er einföld og áhrifarík. Í henni felst einfaldlega að setja hýðið í vatnsglas. En þá má spyrja sig hvaða gagn er að því? Jú, bananahýði í vatni gerir vatnið næringarríkt og gott til að nota sem áburð fyrir plöntur.

Kalíum og önnur steinefni, sem eru í bönunum, leysast upp í vatninu og mynda næringu sem styrkir rætur plantna og örvar vöxt þeirra.

Ef þú vilt prófa þetta, þá kemur uppskriftin að fljótandi bananaáburði hér:

Settu bananahýði í stórt glas.

Fylltu glasið með vatni þannig að það fljóti yfir hýðið.

Láttu hýðið liggja í vatninu í minnst tvo sólarhringa. Þeim mun lengur sem það er í vatninu, þeim mun fleiri næringarefni enda í vatninu.

Svo er bara að nota þetta næringarríka vatn til að vökva plönturnar.

Þú getur endurtekið þetta í hvert sinn sem þú átt bananahýði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Dularfull veðmál í kringum drápið á Khameini og ránið á Maduro – Græddu þeir milljónir á innherjaupplýsingum?

Dularfull veðmál í kringum drápið á Khameini og ránið á Maduro – Græddu þeir milljónir á innherjaupplýsingum?
Pressan
Í gær

Forstjóri Netflix sagðist neita símtölum við Markle nema lögmaður sé viðstaddur

Forstjóri Netflix sagðist neita símtölum við Markle nema lögmaður sé viðstaddur
Pressan
Í gær

Fór heim og grét eftir tökur á kynlífssenum Bridgerton

Fór heim og grét eftir tökur á kynlífssenum Bridgerton
Pressan
Í gær

Þurfti að læra að ganga aftur eftir slys – Hitti loks viðbragðsaðilana sem björguðu henni

Þurfti að læra að ganga aftur eftir slys – Hitti loks viðbragðsaðilana sem björguðu henni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tekinn af lífi fyrir svívirðilegan glæp – „Loksins er þessu lokið“

Tekinn af lífi fyrir svívirðilegan glæp – „Loksins er þessu lokið“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tók DNA-próf hjá Ancestry til að fræðast um ættir sínar – Það átti eftir að varpa ljósi á ótrúleg mistök

Tók DNA-próf hjá Ancestry til að fræðast um ættir sínar – Það átti eftir að varpa ljósi á ótrúleg mistök