

Stutt er síðan DV greindi frá næstu mynd Baltasar Kormáks, Apex, sem væntanleg er á Netflix í lok apríl.
Sjá einnig: Fyrstu myndirnar af Netflix-stórmynd Baltasar Kormáks – Stórstjörnur í aðalhlutverkum
Greinilegt er að Baltasar ætlar ekkert að taka sér frí því næsta mynd er þegar komin á teikniborðið hjá Netflix og Chernin Entertainment og er það stærsta verkefni hans til þessa. Stjórstjörnurnar Mark Wahlberg og Riz Ahmed munu fara með aðalhlutverkin í glæpaspennumyndinni The Big Fix.Guy Bolton og Justin Haythe skrifa handritið, en Baltasar framleiðir ásamt Peter Chernin og David Ready for Chernin.
The Big Fix, sem byggð er á sönnum atburðum, fjallar um fyrrverandi lögreglumann hjá Interpol í embættismannastöðu hjá FIFA sem afhjúpar alþjóðlegt hneyksli sem varðar hagræðingu leikja og hleypir af stokkunum stórviðburði til að stöðva þá sem standa að baki svindlinu. Markmið hans er ástríðufullur svindlari sem sameinar krafta sína með kínversku þríeyki til að græða milljónir með því að hagræða fótboltaleikjum um allan heim. Þegar mennirnir tveir hittast tekur við spennandi, hnattræn spennumynd þar sem tveir þrjóskir, ákveðnir menn mætast.
Deadline rekur að áður en tökum lauk á Apex hafi stjórnendur Netflix velt upp hugmyndum um næsta verkefni Baltasar og The Big Fix varð fyrir valinu, sem að sögn var forgangsverkefni Kiru Goldberg, framkvæmdastjóra Netflix, allt frá því að hún var hjá 20th Century Fox.
Þegar Baltasar sagði já var næsta skref að finna aðalleikarana. Wahlberg og Baltasar eiga sér langa samstarfssögu, þar sem Walhberg lék í Contraband og Two Guns, báðar úr smiðju Baltasars.
Framleiðsla The Big Fix hefst síðar á árinu.
Wahlberg lék síðast í The Family Plan 2. Ahmed lék síðast í Hamlet og The Phoenician Scheme, hann má sjá næst í Digger, mynd Alejandro González Iñárritu (The Revenant) þar sem Tom Cruise leikur aðalhlutverkið.