fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Hryllileg árás á hjúkrunarfræðing – Pyntuð klukkustundum saman

Pressan
Sunnudaginn 7. júní 2026 20:30

Katherine Torbic

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í lok apríl fór lögreglan í Schaumburg í Illinois í Bandaríkjunum heim til Katherine Torbic, hjúkrunarfræðings, sem hafði ekki sést eða heyrst frá þann daginn.

Lögreglan vissi þá af meintu heimilisofbeldi þar sem unnusti Torbic, Kevin Motykie, kom við sögu. Handtökuskipun hafði verið gefin út á hendur honum.

Lögreglan fann Torbick látna á heimilinu. Áverkar voru á líki hennar. Motykie var í bílskúrnum og var hann handtekinn að sögn People.

Torbick og Motykie bjuggu saman og voru par að sögn lögreglunnar.

Motykie hefur verið ákærður fyrir morð af fyrstu gráðu og kynferðisbrot.

Bandarískir fjölmiðlar segja að Motykie sé grunaður um að hafa nauðgað Torbick, lamið hana og kyrkt.

Hann var með upptökutæki á sér þegar lögreglan handtók hann. Upptaka af síðustu sjö klukkustundum var í tækinu, þar á meðal af hljóðunum þegar Torbic var pyntuð.

Torbic heyrist öskra á Motykie að fara ofan af sér og að hann eigi ekki að setja handjárn á hana.

WGN segir að saksóknarar segi að síðustu fjórar mínúturnar í lífi Torbic heyrst á upptökunni, þar á meðal á meðan hún var kyrkt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Ný veira gæti borist úr matnum í augu

Ný veira gæti borist úr matnum í augu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman
Pressan
Fyrir 2 dögum

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife