
Carl Crowther hafði brugðið sér af bæ ásamt fjölskyldu sinni og á sama tíma kom sendillinn með sendingu að húsi þeirra. Pakkinn var fyrir utan útidyrnar þegar þau komu heim, en það vakti athygli þeirra að heimiliskötturinn, Nora, var hvergi sjáanlegur sem þótti óvanalegt.
Carl ákvað að athuga hvort hann fyndi vísbendingar um Noru á eftirlitsmyndavél sem er á dyrabjöllunni við útidyrnar og sá hann þá sendilinn koma með pakkann. En þegar sendillinn yfirgaf svæðið sást hann taka Noru upp og ganga í burtu með hana. Ekkert spurðist til Noru þar til í gær að Carl tilkynnti að hún væri komin aftur heim.
Carl sagði við breska fjölmiðla í vikunni að þar sem Nora væri á lyfjum vegna hjartavandamála hefði hann miklar áhyggjur af henni.
„Þetta er algjörlega ógeðslegt,“ sagði Carl og bætti við að á myndavélinni hafi sendillinn sést greinilega taka Noru upp og ganga í burtu með hana. Gagnrýndi hann einnig forsvarsmenn Amazon og sagði að þeir hefðu veirð lítt hjálplegir í málinu.
„Ég hef sent þeim tölvupóst og svarið þeirra var eiginlega viðbjóðslegt þar sem spurt var hvaða fjárhagslegt verðgildi við myndum setja á köttinn. Hvernig er hægt að setja peningalegt verðgildi á gæludýr einhvers?“
Talið er að sendillinn hafi unnið fyrir fyrirtæki sem þjónustar Amazon á svæðinu. Daily Mail greindi frá því í gær að Nora væri aftur komin í hendur eigenda sinna, en rannsókn málsins stendur yfir og hefur lögregla ekki veitt frekari upplýsingar.