
Ath. Greint er frá framburði Margrétar fyrir dómi hér síðar í fréttinni.
Réttarhöld hófust í morgun í Héraðsdómi Reykjaness yfir Margréti Friðriksdóttur vegna ummæla hennar um Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, í kjölfar þess að Barbara sakfelldi Margréti fyrir hótanir í garð Semu Erlu Serdar þann 9. febrúar árið 2023. Landsréttur sneri síðar þessum dómi við og sýknaði Margréti.
Sama dag og dómurinn féll og daginn eftir viðhafði Margrét ummæli á Facebook-síðu sinni um Barböru sem Barbara kærði til lögreglu. Ummælin eru eftirfarandi:
„Viðbjóðslegur dómur og lauslát mella gefur sinn dóm: Nú var ég sakfelld í dag af lauslátri konu sem seldi blíðu sína til að komast í stöðu dómara, Barbara Björnsdóttir er mella …{…} „Fyrir mér er þessi dómari lauslát mella sem hefur selt sálu sína, og því verður svarað.“
„Dómarinn tekur ekki mark á vitnum og falsar vitnisburði sem komu skýrt fram í dómsal. Fyrir mér er þetta glæpsamleg hegðun og þarna augljóslega verið að misnota dómsvaldið til að hefna sína á borgurum, ég skulda þessari lauslátu konu ekki neitt {…}.“
„Þarna er augljóslega verið að misnota ríkisvaldið dómskerfið, en þess má geta að fv. fannsóknarlögreglumaður hafði samband við mig fyrir 2. vikum síðan til að tilkynna mér að ég myndi tapa málinu og Barbara dómari væri með í því plotti, nú hefur það komið á daginn.“ {…} ég skulda þessu siðblinda hyski sem hagræðir dómum eftir beiðni, ekki neitt.“
Ákærandi í málinu er Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu. Óvenjulegt er að meiðyrðamál verði að sakamálum eins og hér er raunin, en algengt er að slík mál séu rekin sem einkamál og krafist miskabóta. Barbara hefur hins vegar enga kröfu gert um miskabætur en ákæruvaldið krefst þess að Margrét verði dæmd til refsingar.
Samkvæmt ákvæðum hegningarlaga sem vísað er til í ákærunni getur legið allt að tveggja ára fangelsi við þeim brotum sem Margrét er sökuð um.
„Ég varð fyrir hræðilegu áfalli þegar Barbara Björnsdóttir framdi á mér réttarmorð þrátt fyrir vitnisburð sem staðfesti sakleysi. Bjó til lygasögu í dómsorði sínu. Sakaði mann sem hún þekkti ekki neinn um að vera vinur minn. Mér var tjáð það fyrir dóminn að það væri búið að ákveða að dæma mig. Ég trúði því ekki en svo kom á daginn að hún fremur á mér réttarmorð. Þegar hún kveður upp sinn dóm þá fallast saksóknari og Sema Erla í faðma,“ sagði Margrét fyrir dómi. Segist hún hafa upplifað að valdaelíta hafi sameinast gegn sér.
„Ég reiðist, eðlilega, og fæ mikið áfall. Þegar fólk reiðist og fær áfall getur það sagt ýmislegt í hita leiksins. Ég var búin að heyra að þessi manneskja væri óheiðarleg, hún hefði sjálf framið hjúskaparbrot með yfirmanni á vinnutíma í dómshúsi. Að mínu mati er þessi kona vanhæfur dómari.“
Aðspurð segist Margrét standa við þessi ummæli. Hver tilgangurrinn var með þeim þá segist hún hafa verið reið eftir að valdaelítan hefði níðst á henni. Hún segir að dómsniðurstaðan hafi verið viðbjóðslegt réttarmorð.
Hún var spurð hvað hún hafi átt við með því að kalla Barböru lausláta mellu og sagði að það væri vegna þeirrar háttsemi Barböru að hafa stundað framhjáhald á vinnutíma á vinnustaðnum. Hún segist vera með vitni að þessu sem hún hafi ekki fengið að kalla fyrir dóminn.
Segir Margrét að Barbara hafa fengið stöðu varadómstjóra eftir að upp komst um meint framhjáhald hennar með Símoni Sigvaldasyni dómara.
Aðspurð hvað Margrét hefði fyrir sér í þessu ásökunum sagði hún að Barbara hafi fengið stöðu varadómstjóra vegna þess að ástmaður hennar, Símon, hafi mælt með henni. Margrét telur sig hafa farið fínlega í hugtakið „mella“ miðað við þær orðabókaskýringar sem hún fann á hugtakinu.
Segist Margrét hafa farið í orðabók áður en hún skrifaði færslurrnar og valið mildasta orðið sem hún gat fundið um Barböru.
„Augljós spilling, rotið dómskerfi,“ sagði Margrét um Héraðsdóm Reykjavíkur og segist standa við færslurnar um Barböru og dóminn.
Margrét telur Barböru vera vanhæfan dómara vegna hjúskaparbrotsins.
Margrét hélt því fram að rannsóknarlögreglumaður hefði tjáð henni að það hefði verið fyrir fram ákveðið að sakfella hana en hún neitaði að segja frá því hvaða rannsóknarlögreglumaður þetta væri því hún sé bundin trúnaði.
Aðspurð sagði Margrét að dómurinn hafi haft hræðileg áhrif á sig og hafi það enn í dag. Hún væri afgreidd sem ómarktæk þar sem hún væri dæmd ofbeldiskona. Barn hennar hefði einnig orðið fyrir aðskasti vegna dómsins. Þetta hefði einnig haft áhrif á atvinnu hennar og afkomu.
Margrét segir Barböru hafa logið því upp á vitni að hann hafi ekki viljað mæta fyrir dóminn, Viðkomandi hafi síðan gefið skýrslu í gegnum síma.