fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Helgi Bjartur ákærður fyrir að nauðga tíu ára dreng í Hafnarfirði

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 9. janúar 2026 23:14

Helgi Bjartur Þorvarðarson. Mynd: Félag fasteignasala

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært Helga Bjart Þorvarðarson, 46 ára gamlan mann, fyrir nauðgun á tíu ára gömlum dreng.

Jafnframt krafðist Héraðssaksóknari gæsluvarðhalds yfir Helga en hann sat aðeins í þrjá daga í gæsluvarðhaldi eftir að málið kom upp og hefur síðan gengið laus. Héraðsdómur Reykjaness hafnaði hins vegar gæsluvarðhaldskröfu héraðssaksóknara.

Vísir greinir frá þessu. Sjá einnig hér.

Málið vakti mikla athygli og óhug er það kom upp í september. Helgi er sakaður um að hafa í tvígang brotist inn á heimili fjölskyldu í Hafnarfirði í og í fyrra skiptið brotið kynferðislega gegn tíu ára gömlum syni hjónanna sem þar búa. Atvikið átti sér stað aðfaranótt sunnudagsins 14. september 2025. Helgi þekkti móður drengsins lauslega þar sem þau voru fyrrverandi vinnufélagar og í aðdraganda brotsins höfðu þau og aðrir fyrrverandi vinnufélagar verið í sambandi í hópspjalli vegna undirbúnings sameiginlegs hádegisverðar.

Foreldrar drengsins röktu málavöxtu í viðtali við Heimildina í lok október og DV greindi frá því:

Sjá einnig: Meintur gerandi hringdi stöðugt í móðurina í aðdraganda húsbrotsins – Sláandi lýsingar á ofbeldi gegn drengnum

Sem fyrr segir hefur Helgi að mestu leyti gengið laus síðan málið kom upp  og hefur það vakið gagnrýni þar sem hann er grunaður um mjög alvarlegan ofbeldisglæp og kynferðisbrot gegn barni.

Helgi er sjálfur fjögurra barna faðir en samkvæmt heimildum DV hefur hann verið virkur þátttakandi í íþróttamótum barna sinna og verið ófeiminn við að láta sjá sig sig á almannafæri undanfarna mánuði.

Í virtri stöðu í samfélaginu

Helgi er ekki landsþekktur maður en hefur notið virðingar í samfélaginu. Hann hefur starfað sem löglærður fulltrúi hjá embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum, sem löggiltur fasteignasali og sem hárgreiðslumaður. Hann hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum og meðal annars setið í stjórn BHM og Stéttarfélags lögmanna.

Samkvæmt heimildum DV býr hann enn með eiginkonu sinni og börnum.

Ákæra héraðssaksóknara gegn honum hefur ekki borist fjölmiðlum þar sem slíkt er ekki gert fyrr en þremur dögum eftir að ákæra hefur verið birt sakborningi. Einnig er mögulegt að þinghald verði lokað og það mun tefja fyrir því að fjölmiðlar fái ákæruna í hendur og efnisatriði hennar beri fyrir sjónir almennings.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“