Konan lýsti reynslu þessu á Reddit-þræðinum Reykjavik og vakti frásögn hennar töluverða athygli.
„Hæ allir! Ég er að ljúka þriggja daga fríi í Reykjavík. Það hefur verið dásamlegt og töfrandi – fullt af skemmtun og fallegri náttúru. En það komu upp tvö atvik sem skildu eftir mig dálítið undrandi,“ segir konan.
Hún lýsir því svo að á laugardagskvöldið hafi hún verið ein úti á bar þegar hún settist niður tveir strákar fóru að tala við hana. Annar mannanna var Bandaríkjamaður en hinn Íslendingur.
„Þeir spurðu með hverjum ég væri og ég sagði að ég væri í heimsókn með fjölskyldunni, en núna úti ein. Íslenski strákurinn sagði, í gríni, „þannig að enginn myndi vita það ef við myndum ræna þér?“
Konan segist ekki beint hafa orðið hrædd því hennar hafi verið ljóst að maðurinn hafi verið að reyna að vera fyndinn á illkvittnislegan hátt. „En mér líkaði þetta ekki og stóð bara upp og hélt áfram með kvöldið. Ég hugsaði ekki mikið meira um það og hélt áfram að njóta,“ segir konan.
Hún segir að daginn eftir hafi hún farið með foreldrum sínum að skoða Hólavallakirkjugarð.
„Þegar við vorum að labba um kallaði til okkar ungt íslenskt par (líklega á þrítugsaldri): „Velkomin til Reykjavíkur! Hvaðan eruð þið?“ Við svöruðum að við værum frá austurströnd Bandaríkjanna. Þá spurði strákurinn: „Eruð þið gyðingar?“ Við stoppuðum, dálítið hissa, og sögðum nei (sem við erum ekki) – og hann svaraði „Guði sé lof.“ Þetta var sérstaklega óhugnanlegt. Við urðum hissa og hrædd við þetta. Þetta atvik, ásamt því sem gerðist á barnum kvöldið áður, skildu eftir mjög vonda tilfinningu hjá mér eftir annars frábært ferðalag,“ sagði konan sem spurði í kjölfarið:
„Getur einhver útskýrt fyrir mér, hvað er í gangi? Hverja rakst ég á? Er þetta ríkjandi menning í Reykjavík? Aðrir sem við hittum voru yndislegir – en VÁ…“
Eins og fyrr segir vakti færsla konunnar töluverða athygli og voru nær allir á því að þetta væri ekki dæmigerð hegðun hjá Íslendingum.
„Sem Bandaríkjamaður sem hefur búið á Íslandi í áratug get ég fullvissað þig um að flestir Íslendingar fengju hroll af því að heyra þessa sögur. En á sama tíma kemur þetta mér ekki á óvart,“ segir til dæmis í einni athugasemdinni og bætir viðkomandi svo við: „Mér þykir leitt að þú hafir lent í þessu.“
Fleiri taka í svipaðan streng. „Alls ekki algengt og mjög furðulegar uppákomur,“ segir til dæmis einn.