fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Guardiola segir frá fundi sem hann á fyrir helgina – Þar mun framtíð hans ráðast

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 20. maí 2026 19:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pep Guardiola mun samkvæmt enskum miðlum ræða við Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformann Manchester City, fyrir helgina um ákvörðun sína að yfirgefa félagið eftir tímabilið.

Daily Mail greindi frá því að Guardiola hefði ákveðið að láta af störfum eftir tíu ára dvöl hjá City þar sem hann hefur skapað eitt sigursælasta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Manchester City missti nýverið af Englandsmeistaratitlinum þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Bournemouth og Arsenal tryggði sér toppsætið.

Guardiola sagði sjálfur eftir leikinn að hann vildi ræða málið fyrst við formann félagsins áður en nokkuð yrði opinberað.

„Fyrsti maðurinn sem ég þarf að tala við er stjórnarformaðurinn minn. Við munum ræða saman á næstu dögum,“
sagði Guardiola.

Spánverjinn útskýrði einnig hvers vegna hann hefði ekki viljað tilkynna ákvörðun sína fyrr á tímabilinu.

„Ef þú ert að berjast um titla og tilkynnir að þú sért að fara, þá hætta leikmennirnir að fylgja þér frá fyrstu stundu,“ sagði hann.

Manchester City hefur að sögn undirbúið sig fyrir mögulega brottför Guardiola um nokkurt skeið og Enzo Maresca hefur verið nefndur sem einn helsti kandídatinn til að taka við liðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt