fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
433Sport

Guardiola: „Ég ætla ekki að tilkynna neitt hér“

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 20. maí 2026 11:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pep Guardiola segir að hann muni ræða við stjórnarformann Manchester City, Khaldoon Al Mubarak, áður en hann tekur endanlega ákvörðun um framtíð sína hjá félaginu.

City missti endanlega af möguleikanum á enska meistaratitlinum í gær eftir 1-1 jafntefli gegn Bournemouth sem tryggði Arsenal titilinn.

Miklar fréttir hafa verið um að Guardiola muni hætta eftir tímabilið en hann vill ekki tjá sig um málið að svo stöddu.

„Fyrsta manneskjan sem ég þarf að tala við er stjórnarformaðurinn,“ sagði Guardiola eftir leikinn.

„Ég ætla ekki að tilkynna neitt hér. Ég þarf að ræða við stjórnarformanninn, leikmennina og starfsfólkið.“

Guardiola er samningsbundinn City til ársins 2027 en talið er að ákvæði í samningi hans geri honum kleift að fara í sumar.

Bernardo Silva, sem sjálfur hefur staðfest að hann muni yfirgefa City eftir tímabilið, sagðist ekki vita neitt um stöðu Guardiola.

„Það er hans ákvörðun og hans að tilkynna hana,“ sagði Portúgalinn.

Ef Guardiola hættir lýkur þar með tíu ára tímabili hans hjá City þar sem félagið vann sex enska meistaratitla og alls 20 titla undir hans stjórn.

Enzo Maresca hefur helst verið orðaður við stjórastarfið ef Guardiola hættir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Arsenal er Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár – City tókst ekki að vinna á Suðurströndinni

Arsenal er Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár – City tókst ekki að vinna á Suðurströndinni
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Er sjóðheitur biti fyrir sumarið en verður rándýr

Er sjóðheitur biti fyrir sumarið en verður rándýr
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Manchester City gæti þurft að greiða Chelsea bætur

Manchester City gæti þurft að greiða Chelsea bætur
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Jason Daði á förum – Aftur í Bestu deildina?

Jason Daði á förum – Aftur í Bestu deildina?