fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Gæti misst starf sitt og verið settur í bann eftir njósnahneykslið

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 20. maí 2026 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Southampton gæti rekið knattspyrnustjórann Tonda Eckert eftir njósnahneykslið sem varð til þess að félaginu var hent úr umspili ensku B-deildarinnar.

Middlesbrough, sem tapaði undanúrslitaeinvíginu gegn Southampton, fær sæti í úrslitaleiknum gegn Hull eftir að sjálfstæð nefnd ensku deildarkeppninnar komst að þeirri niðurstöðu að Southampton hefði brotið reglur með því að njósna um æfingar liðsins fyrir undanúrslitaeinvígið.

Southampton fær einnig fjögurra stiga frádrátt sem tekur gildi í ensku B-deildinni á næsta tímabili.

Samkvæmt Talksport viðurkenndi Eckert sjálfur að bera ábyrgð á njósnunum, en slíkt sé algengara í þýska boltanum þar sem hann starfaði áður.

Eigandi Southampton, Dragan Solak, er sagður afar ósáttur enda gæti málið hafa kostað félagið möguleikann á sæti í úrvalsdeildinni og þeim gríðarlegu tekjum sem fylgja því.

Þá gætu bæði Eckert og yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu, Johannes Spors, átt yfir höfði sér mögulegt bann frá enska knattspyrnusambandinu. Enn á eftir að ákveða hvort þeir verði sérstaklega rannsakaðir.

Southampton hefur áfrýjað refsingunni en búist er við niðurstöðu úr því máli síðar í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt