fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Arsenal sagt vilja kaupa slatta í sumar – Svona gæti byrjunarliðið litið út

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 20. maí 2026 20:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal er komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar á ný eftir 22 ára bið en félagið ætlar sér ekki að stoppa þar.

Meistaratitillinn varð staðfestur á þriðjudagskvöld þegar Manchester City gerði 1-1 jafntefli við Bournemouth. Leikmenn Arsenal fögnuðu síðan innilega á æfingasvæði félagsins ásamt starfsfólki og stjórnendum.

Íþróttastjórinn Andrea Berta er þó þegar byrjaður að horfa til næsta tímabils og undirbúa sumargluggann. Arsenal vill styrkja hópinn enn frekar til að verja titilinn og halda áfram uppbyggingu félagsins.

David Raya er talinn öruggur í markinu eftir að hafa unnið Gullhanskann þriðja tímabilið í röð. Hins vegar gætu orðið breytingar í varnarlínunni.

Tino Livramento hjá Newcastle hefur verið sterklega orðaður við Arsenal síðustu vikur. Enski landsliðsmaðurinn getur leikið báðum megin í vörninni og gæti orðið fastamaður vinstra megin ef meiðslavandræði Riccardo Calafiori halda áfram.

Arsenal er einnig sagt vilja styrkja miðsvæðið og hefur Mateus Fernandes hjá West Ham verið nefndur sem möguleg viðbót. Manchester United hefur einnig sýnt leikmanninum áhuga.

Mikel Arteta og stjórnendur Arsenal vilja greinilega ekki bíða önnur 22 ár eftir næsta Englandsmeistaratitli og ætla að nýta sumarið til að gera liðið enn sterkara og eru sagðir vilja tvo leikmenn í sóknarlínu sína.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt