fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Arteta horfði ekki á leikinn með leikmönnum sínum – Hitti þá á djamminu síðar um kvöldið

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 20. maí 2026 15:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal tryggði sér enska meistaratitilinn í gærkvöldi eftir að Manchester City gerði jafntefli við Bournemouth og getur þar með ekki náð liðinu að stigum.

Um er að ræða fyrsta Englandsmeistaratitil Arsenal í 22 ár og voru fagnaðarlæti leikmanna, starfsfólks og stuðningsmanna um alla London eftir því.

Leikmenn og eitthvað af starfsfólki horfðu á leik City í gær saman en samkvæmt Mirror fylgdist Arteta með leiknum heima með fjölskyldu sinni áður en hann kom til móts við leikmenn Arsenal á Tape-næturklúbbnum í Mayfair síðar um kvöldið.

Leikmenn Arsenal héldu svo áfram að fagna langt fram á nótt og hittu sumir þeirra stuðningsmenn fyrir utan Emirates-leikvanginn klukkan fimm í morgun.

Næst tekur við leikur við Crystal Palace, þar sem Arsenal fær bikarinn afhendann, áður en liðið fer til Búdapest og mætir Paris Saint-Germain í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt