fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Verður þetta byrjunarlið Englandsmeistaranna á næstu leiktíð?

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 20. maí 2026 14:00

Bradley Barcola Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal er Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár en félagið er þegar farið að horfa til næsta tímabils og styrkinga í sumar.

Leikmenn og starfsfólk fögnuðu titlinum saman í gær eftir að Manchester City missteig gegn Bournemouth og getur þar með ekki lengur náð Arsenal.

Getty Images

Yfirmaður knattspyrnumála hjá Arsenal, Andrea Berta, er þegar byrjaður að undirbúa sumargluggann þar sem félagið ætlar sér að verja titilinn á næsta tímabili.

Arsenal hefur verið orðað við nokkra öfluga leikmenn síðustu vikur. Tino Livramento hjá Newcastle er sagður á óskalistanum en hann getur spilað bæði hægri og vinstri bakvörð.

Getty Images

Þá hefur miðjumaðurinn Mateus Fernandes verið orðaður við félagið, en Arsenal er sagt fylgjast grannt með stöðu hans hjá West Ham, sem gæti fallið úr úrvalsdeildinni á næstu dögum.

Í sókninni hafa nöfn á borð við Julian Alvarez og Bradley Barcola verið orðuð við félagið.

The Sun tók saman mögulegt byrjunarlið Arsenal á næstu leiktíð og má sjá það hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt