fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
433Sport

Rashford að taka gríðarlega óvænt skref?

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 19. maí 2026 22:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marcus Rashford er afar óvænt orðaður við Real Madrid í spænska blaðinu Sport.

Rashford er að klára eins árs lánsdvöl hjá Barcelona frá Manchester United, en honum hefur tekist að endurvekja feril sinn í Katalóníu og hjálpaði hann liðinu að tryggja sér Spánarmeistaratitilinn á dögunum.

Börsungar hafa kaupmöguleika upp á 26 milljónir punda í sumar, en það er samkomulag sem félagið gerði við United í fyrra. Talið er að Barcelona vilji þó reyna að semja við enska félagið um lægra verð.

Takist United og Barcelona ekki að semja vill Jose Mourinho, sem er að taka við Real Madrid á nýjan leik, skoða þann möguleika með forráðamönnum félagsins að kaupa Rashford.

Gæti enski sóknarmaðurinn reynst ódýr kostur í framlínuna með mikla reynslu af því að spila á hæsta stigi.

Það er þó afar óalgengt að menn spili fyrir bæði Barcelona og Real Madrid svo þetta verður að teljast ólíkleg niðurstaða.

Rashford er samningsbundinn United til 2028 en ekki er talið að hann muni klæðast treyju félagsins á ný.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ruben Amorim gæti verið að landa einu stærsta starfi í Evrópu

Ruben Amorim gæti verið að landa einu stærsta starfi í Evrópu
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Keane og Wright agndofa yfir vinnuaðstöðu sinni í Bandaríkjunum – „Þetta er magnað“

Keane og Wright agndofa yfir vinnuaðstöðu sinni í Bandaríkjunum – „Þetta er magnað“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

KR að selja Cosic til Noregs – Kaupverðið sagt vera í kringum 80 milljónir

KR að selja Cosic til Noregs – Kaupverðið sagt vera í kringum 80 milljónir
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Saumað að honum í beinni: Var rekinn fyrir dónaleg skilaboð til samstarfskvenna – „Ég hef tekið út refsingu mína“

Saumað að honum í beinni: Var rekinn fyrir dónaleg skilaboð til samstarfskvenna – „Ég hef tekið út refsingu mína“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Carrick byrjaður að skoða framherja Everton

Carrick byrjaður að skoða framherja Everton
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

PSG stórhuga og vilja einn besta leikmann Bayern

PSG stórhuga og vilja einn besta leikmann Bayern