

Bjarni Helgason, blaðamaður á Morgunblaðinu og stuðnignsmaður Liverpool, er ekki sáttur við stjóra liðsins, Arne Slot, og stendur með Mohamed Salah í baráttu þeirra.
Það hefur andað köldu milli Salah og Slot á leiktíðinni. Í vetur hjólaði Egyptinn í stjórann vegna skorts á spiltíma og gagnrýndi hann Hollendinginn á dögunum fyrir leikstíl hans og fleira til.
Salah hefur opinberað að hann muni yfirgefa Liverpool í sumar eftir ótrúleg níu ár hjá félaginu.
„Það ætti öllum að vera ljóst að Salah er á förum frá Liverpool, einfaldlega vegna þess að hann hefur engan áhuga á því að vinna með Hollendingnum lengur,“ skrifar Bjarni í pistli sínum í Morgunblaðinu í dag.
„Skjótt skipast veður í lofti og allt það. Slot var frábær stjóri í fyrra þegar Salah átti eitt sitt besta tímabil í Liverpool-búningnum, enda breytti hann litlu frá Klopp-tímanum, en tímabilið í ár, með áherslubreytingum Slots, hefur í raun verið katastrófa ef horft er til spilamennsku liðsins og hversu mikið hún hefur dalað milli ára.“
Flestir stuðningsmenn Liverpool virðast vilja losna við Slot, þó svo að hann hafi gert liðið að Englandsmeisturum í fyrra. Því hefur verið velt upp hvort hann spili Salah ekki í lokaleik tímabilsins á Anfield um komandi helgi, sem verður að öllu óbreyttu lokaleikur hans fyrir félagið.
„Slot, sem virðist vera að setja met í óvinsældum hjá stuðningsmönnunum, mun svo sannarlega ekki auka á vinsældir sínar ef hann ákveður að taka Salah úr hópnum fyrir kveðjuleikinn hans á sunnudaginn. Maður verður að gefa Salah það að hann kann upplýsingafulltrúaleikinn upp á 10 og ég held með honum þar sem ég er kominn með alveg nóg af Arne Slot líka.“