

Rodri gæti verið á leið til Real Madrid eftir tíðindin um væntanlega brottför Pep Guardiola frá Manchester City samkvæmt spænska miðlinum Marca.
Miðillinn setti Rodri á forsíðu sína á miðvikudag með fyrirsögninni „Rodri myndi koma á stundinni“, sem á að undirstrika hversu áhugasamur spænski miðjumaðurinn sé um möguleg félagaskipti til Madrídar.
Marca segir að Real Madrid hafi lengi litið á Rodri sem draumakaup til að styrkja miðsvæðið sitt en að Pep Guardiola hafi hingað til verið stærsta hindrunin. Guardiola fékk Rodri til Manchester City frá Atlético Madrid árið 2019 og miðjumaðurinn hefur síðan verið lykilmaður hjá enska félaginu.
Nú þegar Guardiola virðist vera á leið frá City telur Real Madrid að möguleikinn á að fá Rodri sé orðinn raunhæfur.
Samkvæmt fréttum er Rodri sjálfur „mjög áhugasamur“ um að klæðast treyju Real Madrid ef tækifærið gefst.
Real Madrid hefur verið að leita að leiðtoga á miðjunni til framtíðar og Rodri er sagður efstur á óskalista félagsins. Hann hefur verið einn besti miðjumaður heims undanfarin ár og gegnt lykilhlutverki í velgengni Manchester City bæði á Englandi og í Evrópu.