fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Amorim gæti fengið áhugavert starf

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 20. maí 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ruben Amorim gæti verið á leið aftur í þjálfum, nokkrum mánuðum eftir brottreksturinn frá Manchester United.

Samkvæmt The Sun er Benfica að skoða Amorim sem eftirmann Jose Mourinho sem er á leið til Real Madrid.

Amorim var rekinn frá United í janúar eftir 14 mánuði í starfi þar sem hann vann einungis 31,9 prósent leikja sinna, versta hlutfall fastaráðins stjóra í sögu félagsins.

Portúgalinn stýrði Sporting í Portúgal áður en hann tók við United en á að baki farsælan leikmannaferil með Benfica.

Amorim lék í níu ár með Benfica og er sagður eiga gott samband við forseta félagsins, Rui Costa.

Benfica endaði í þriðja sæti portúgölsku deildarinnar á tímabilinu og missti af sæti í Meistaradeildinni þrátt fyrir að tapa ekki leik. Jafnteflin urðu þeim að falli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt