433

Mun Klopp hætta hjá Liverpool þegar samningurinn er á enda?

Mynd

Jurgen Klopp stjóri Liverpool gæti lokið ferli sínum hjá félaginu árið 2022 þegar samningur hans er á enda.

Klopp hefur unnið frábært starf á Anfield og vonast til þess að geta klárað ensku úrvalsdeildina fyrir félagið.

„Ef ég ákvað á þeim tímapunkti að hætta, þá tek ég frí í ár,“ sagði Klopp.

„Ég er með mikla orku í dag, en ég verð að taka mér frí ef ég finn hana minnka. Ég verð að geta gefið mig allan í starfið.“

„Það eru miklar líkur á því að orkan mín komi eftir ár í fríi, svo get ég aftur farið í starfið sem ég elska.“