Spænska lögreglan hefur handtekið fimm menn vegna hvarfs Darren Hoolahan, bróður Wes Hoolahan, fyrrverandi landsliðsmanns Írlands og leikmanns Norwich.
Darren, sem er fertugur, hvarf á Costa del Sol á Spáni þann 10. júní síðastliðinn. Hann er talinn hafa tengst glæpagengi sem hefur tengsl við hinn alræmda Kinahan-fíkniefnahring.
Darren fór á fund manns á kaffihúsi í Marbella daginn sem hann hvarf. Lögreglan telur að honum hafi í kjölfarið verið rænt og hann fluttur á afskekktan stað. Bíll sem notaður var við hið meinta mannrán fannst síðar brunninn.
Mánuði áður höfðu nokkrir bílar í eigu Darren verið brenndir fyrir utan heimili hans. Lögreglan telur að um viðvörun hafi verið að ræða og að hvarfið tengist uppgjöri innan glæpaheimsins.
Fimm menn voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu í lok október. Við húsleitir fundust meðal annars AK-47 hríðskotariffill, vélbyssa, þrjár skammbyssur, tæplega 38 kíló af hassi og rúmlega 61 þúsund evrur í reiðufé.
Darren er enn ófundinn og óttast lögregla að hann hafi verið myrtur.
Bróðir hans, Wes Hoolahan, lék um árabil með Norwich í ensku úrvalsdeildinni og á að baki 43 landsleiki fyrir Írland.