KSÍ tilkynnti í dag að sambandið myndi, ásamt bakhjörlum, bjóða íslensku þjóðinni á úrslitaleikinn við Portúgal um sæti á HM í Brasilíu næsta sumar.
Liðin mætast í tveggja leikja einvígi í byrjun desember. Ytra þann 1. desember og á Laugardalsvelli 5. desember. Ef Stelpurnar okkar vinna fara þær á HM í fyrsta sinn.
„Við þurfum hjálp í þessu verkefni og við að stíga yfir þennan hjalla. Stuðningur fólks úr stúkunni mun skipta máli. Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að því fleiri sem mæta, því orkumeira getur liðið verið,“ sagði Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari á blaðamannafundi í Laugardalnum í dag þegar þessi mál voru rædd.