433

Syrgir góðan félaga sem bjargaði honum - „Án hans væri ég ekki að skrifa þetta í dag“

Mynd
Stan Collymore. Mynd/Getty

Danny Kelly, einn þekktasti útvarpsmaður Bretlands, er látinn, 69 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein í vélinda.

Kelly starfaði um árabil hjá talkSPORT og naut mikillar virðingar fyrir störf sín.

Stan Collymore, fyrrverandi framherji Liverpool og enska landsliðsins, hefur nú minnst vinar síns með hjartnæmum orðum.

Collymore greinir frá því að hann hafi glímt við alvarleg andleg veikindi árið 2008 og verið kominn á mjög erfiðan stað í lífinu.

Þá hafi kynni hans af Kelly breytt öllu. „Ég kallaði hann pabba í beinni útsendingu vegna þess að ég óskaði þess að hann væri það,“ skrifaði Collymore.

Kelly bauð honum síðar að starfa með sér hjá talkSPORT. „Hann gaf mér tækifæri til að vinna aftur, tala um fótbolta og finna að ég hefði gildi sem manneskja.“

Collymore segir stuðning Kelly hafa skipt sköpum. „Án hans væri ég ekki að skrifa þetta í dag.“

„Takk fyrir góðmennskuna, vonina og stuðninginn. Ég elska þig.“