Jude Bellingham, miðjumaður Real Madrid og enska landsliðsins, hefur vakið athygli fyrir einlægni sína í viðtali við tískutímaritið Vogue.
Bellingham, sem er 23 ára, hefur lengi verið lýst sem óvenju þroskuðum leikmanni miðað við aldur, en sjálfur segist hann ekki vera jafn þroskaður utan vallar.
„Mér finnst ég þroskaður þegar kemur að fótbolta, enda hef ég spilað næstum 400 leiki. En í daglegu lífi finnst mér ég ekki sérstaklega þroskaður,“ sagði Bellingham.
„Ég kann ekki að elda og ég kann ekki að keyra. Ég er góður í því sem ég geri, en öðru? Ekki sérstaklega.“
Englendingurinn segist treysta mikið á fjölskyldu sína og fólk í kringum sig við hversdagsleg verkefni.
„Ég vinn hörðum höndum allan daginn og þegar ég kem heim hef ég oft vanrækt að læra þessa einföldu hluti.“
Bellingham ræddi einnig ábyrgðina sem fylgir því að vera fyrirmynd ungs fólks.
„Ég hef alltaf sagt að utan vallar vilji ég vera herramaður.“
Hann segir mikilvægt að knattspyrnumenn átti sig á áhrifum sínum.
„Hvort sem þér líkar það betur eða verr lítur næsta kynslóð upp til þín. Ég kýs að líta á það sem forréttindi.“
Bellingham hefur skorað fjögur mörk og lagt upp önnur fjögur í spænsku deildinni á tímabilinu.