433

Heyrir þetta um standið á Pochettino þessa stundina

Mynd

Mauricio Pochettino er talinn líklegastur til að taka við sem knattspyrnustjóri Manchester United af Michael Carrick, sem er undir mikilli pressu vegna slaks gengis liðsins.

David Ornstein, fréttamaður The Athletic, segir að Pochettino sé nú fullur af orku og tilbúinn í nýja áskorun.

„Ég heyri að hann sé orðinn mun ferskari og áhugasamari en hann hefur verið í mjög langan tíma,“ sagði Ornstein.

„Þið munuð sjá allt aðra útgáfu af honum núna þegar hann hefur endurheimt orkuna.“

Pochettino hefur áður stýrt Tottenham og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni en er nú landsliðsþjálfari Bandaríkjanna.

Verði hann ráðinn bíður hans afar krefjandi verkefni á Old Trafford. United hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og breytinga er talin þörf.