Melissa Satta, fyrrverandi eiginkona knattspyrnumannsins Kevin-Prince Boateng, vakti mikla athygli þegar hún mætti í gegnsæjum toppi á ítölsku skemmtanahátíðina Il Festival dello Spettacolo.
Satta, sem er fertug, var þar til að kynna kvikmyndina Sindone C14, þar sem hún fer með sitt fyrsta stóra kvikmyndahlutverk.
Fylgjendur hennar á Instagram voru yfir sig hrifnir af klæðnaðinum.
„Guð minn góður, hvað hún er falleg!“ skrifaði einn.
Satta var gift Boateng á árunum 2016 til 2020 en samband þeirra vakti mikla athygli.
Árið 2012 ræddi hún opinskátt um kynlíf þeirra og taldi það jafnvel geta skýrt meiðslavandræði knattspyrnumannsins.
„Ástæðan fyrir því að hann er alltaf meiddur er sú að við stundum kynlíf sjö til tíu sinnum í viku. Ég óttast að það valdi álaginu,“ sagði Satta.
Hún fór einnig ítarlega út í kynlífsvenjur sínar. „Ég hata forleik. Ég vil fara beint í aðalatriðið. Ég vil helst vera ofan á svo ég geti stjórnað.“
Satta var síðar í sambandi með tennisleikaranum Matteo Berrettini.
Þegar meiðsli hans voru einnig tengd kynlífi þeirra brást hún ókvæða við. „Hann meiddist á sama stað árið 2021, þegar ég þekkti hann ekki einu sinni. Þarf ég virkilega að svara þessu?“
Satta er nú í sambandi með ítalska kaupsýslumanninum Carlo Gussalli Beretta.