433

Souness hefur áhyggjur af Liverpool: „Þetta er ekki Liverpool sem ég þekki“

Mynd

Graeme Souness, goðsögn hjá Liverpool hefur áhyggjur af Liverpool og hvernig liðið lítur út í upphafi móts.

Þetta segir Souness þrátt fyrir að Liverpool hafi unnið fyrsta leik í deildinni, og að liðið hafi unnið Ofurbikar UEFA gegn Chelsea á miðvikudag.

Þá gagnrýnir Souness miðjumann liðsins, Fabinho. „Fabinho, lét bara Kante dansa í kringum sig,“ sagði Souness.

„Þetta var ekki Liverpool, ekki Liverpool sem hafði sama kraft og við sáum á síðustu leiktíð.“

„Ég var hissa að Liverpool virkaði þreyttara en Chelsea, Liverpool fékk meiri hvíld en Chelsea.“