
Læknir á heilsugæslustöð á norðurhluta Tenerife, nánar tiltekið í Los Realejos, hefur verið handtekinn vegna gruns um fjölmörg kynferðisbrot í starfi.
Læknirinn er sakaður um að hafa snert fjölmarga kvensjúklinga með óviðurkvæmilegum hætti á viðkvæmum líkamshlutum án þess að snertingarnar hefðu einhvern læknisfræðilegan tilgang.
Samræmi er í framburði kvenna sem hafa kært lækninn og er hann talinn hafa sýnt áþekkt og endurtekið hegðunarmynstur við brotin. Rannsóknarlögregla vinnur að því að bera kennsl á fleiri meinta brotaþola læknisins. Lögregla hefur ekki viljað lýsa brotunum nánar til að spilla ekki rannsókn málsins.
Læknirinn hefur verið leiddur fyrir dómara en rannsókn málsins heldur áfram.
Sjá nánar á Canarian Weekly.