fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Nú þarftu ekki lengur að þefa af handklæðinu – Hér er sannleikurinn um hversu oft á að þvo það

Pressan
Sunnudaginn 10. maí 2026 17:30

Hversu oft á að þvo þau? Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við þekkjum eflaust öll týpuna sem notar „þefprófið“ til að kanna hvort hægt sé að nota handklæðið í eitt skipti enn (kannski notar þú þessa aðferð).  En hér kemur sannleikurinn um hversu oft á að þvo handklæði og sængurfatnað og því engin ástæða til að nota „þefprófið“ aftur.

Þetta er í raun eilífðar barátta. Ef þú þværð of oft, þá eyðileggurðu efnin. Ef þú þværð of sjaldan, þurrkar þú þér eða sefur í bakteríusprengju.

Sérfræðingarnir hjá Goodhouskeeping.com fjölluðu um þetta nýlega og komu með svörin sem okkur hefur greinilega vantað alla tíð!

Rúmið þitt er skítugra en þú heldur – Rúmið þitt er paradís fyrir húðfrumur, svita og rykmaura. Því þarf að skipta á því á hálfs mánaðar fresti.

En ef þú ert manngerðin sem svitnar mikið á nóttunni eða ef þú átt það til að fá þér miðdegisblund án þess að fara í bað áður, þá þarftu að skipta vikulega á rúminu.

Koddinn og sængin eru ekki undanþegin þvotti en góðu fréttirnar eru að það er nóg að þvo þetta tvisvar eða þrisvar á ári.

Hvað með handklæðin? – Margir nota sama handklæðið vikum saman en sérfræðingarnir segja að það þurfi að þvo þau þegar búið er að nota þau 3-4 sinnum.

Mundu líka að það á ekki að vöðla þau saman og setja í raka hrúgu. Það þarf að slétta þau alveg og hafa á stað þar sem er góð loftræsting.

Ef þú notar handklæðið við æfingar, þá þarf auðvitað að þvo það strax eftir það, nema þú sért manngerðin sem elskar lyktina af súrum líkamsræktarsvita.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Ný veira gæti borist úr matnum í augu

Ný veira gæti borist úr matnum í augu
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Liggur þú á evrumynt? – Sumar geta verið mjög verðmætar

Liggur þú á evrumynt? – Sumar geta verið mjög verðmætar
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Í gær

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum