fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Kvaldist í sjö mánuði eftir aðgerð – trúði ekki eigin augum þegar orsökin fannst

Pressan
Fimmtudaginn 14. maí 2026 16:30

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

53 ára kona á Ítalíu hefur lagt fram kæru gegn skurðlækni eftir að skæri fundust í kviðarholi hennar sjö mánuðum eftir að hún gekkst undir aðgerð á læknastofu í Napólí.

Konan, sem ekki hefur verið nafngreind, gekkst undir svuntuaðgerð í október á síðasta ári. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum leið henni illa strax eftir aðgerðina og fann fyrir miklum verkjum. Hún missti meðal annars meðvitund og þurfti að leita sér aðstoðar á ný.

Læknar töldu í fyrstu að um hefðbundin einkenni eftir aðgerð væri að ræða. Rannsóknir sýndu síðar að konan væri með sýkingu og henni voru gefin sýklalyf. Heilsu hennar hélt þó áfram að hraka næstu mánuði.

Sjö mánuðum síðar leitaði hún til annarrar læknastofu í Napólí þar sem framkvæmd var ítarleg rannsókn á kvið hennar. Þá kom í ljós að sex tommu skurðskæri höfðu verið skilin eftir inni í henni í upphaflegu aðgerðinni.

Skærin gleymdust.

Samkvæmt lögregluskýrslu var konunni boðið að snúa aftur á sömu klíník svo hægt væri að fjarlægja skærin, en hún hafnaði því alfarið.

„Ég mun aldrei stíga fæti þarna inn aftur,“ er haft eftir henni í ítölskum fjölmiðlum. Einnig kemur fram að eiginkona skurðlæknisins hafi haft samband og beðist afsökunar.

Konan hefur nú fengið lögfræðiaðstoð og nýtur stuðnings frá Domenico Caliendo-sjóðnum, sem hefur barist fyrir auknu öryggi í heilbrigðiskerfinu eftir dauða tveggja ára drengs sem lést við hjartaígræðslu á Ítalíu.

Lögregla rannsakar nú málið en hefur ekki gefið út opinbera yfirlýsingu. Konan gekkst undir aðgerð í þessari viku þar sem skærin voru fjarlægð.

Svipað mál kom upp í Ástralíu árið 2004 þegar sjö tommu skurðskæri fundust í maga 69 ára konu tæpum átján mánuðum eftir aðgerð. Þá hafði vefur líkamans vaxið yfir skærin og þurfti að fjarlægja hluta af ristli hennar til að ná þeim út.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Ný veira gæti borist úr matnum í augu

Ný veira gæti borist úr matnum í augu
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Liggur þú á evrumynt? – Sumar geta verið mjög verðmætar

Liggur þú á evrumynt? – Sumar geta verið mjög verðmætar
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Í gær

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum