fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Könnun leiðir í ljós á hvaða aldri fólk er hamingjusamast

Fókus
Fimmtudaginn 14. maí 2026 13:30

Þrír af hverjum fjórum sögðust frekar velja ástina en auð ef þeir þyrftu að gera upp á milli. Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvenær í lífinu erum við hamingjusömust? Þetta er spurning sem margir velta fyrir sér á einhverjum tímapunkti ævinnar og svörin eru eflaust jafn mismunandi og fólkið sjálft.

Ný bandarísk könnun bendir þó til þess að margir upplifi mesta lífsánægju síðar á ævinni en ætla mætti – og að sterk tengsl við fjölskyldu og vini skipti þar meira máli en peningar eða starfsframi.

Könnunin var framkvæmd af neytendarannsóknarfyrirtækinu Cherry Data Signals og voru 6.442 einstaklingar, 65 ára og eldri, beðnir um að líta til baka og meta á hvaða tímabili þeir hefðu verið hamingjusamastir í lífinu.

Niðurstöðurnar benda til þess að margir upplifi aukna aukna ánægju fljótlega eftir fimmtugt, 52 ára nánar tiltekið, þegar starfsferillinn er orðinn stöðugri, fjölskyldu- og vinatengsl sterkari og fjárhagslegt öryggi meira en áður.

Þá hafi fólk oft meira svigrúm til að njóta áhugamála, ferðalaga og annarra lífsgæða.

Samskipti og tengsl við annað fólk reyndust skipta mestu máli þegar kemur að hamingju. Um 34 prósent þátttakenda sögðu vináttu og persónuleg tengsl vera helstu uppsprettu lífsánægju. Þar á eftir komu heilsa, sem 18 prósent nefndu, maki eða rómantískt samband með 15 prósent og starfsferill með 14 prósent. Aðeins 11 prósent töldu heimili eða húsnæði vera stærsta þáttinn í eigin hamingju.

Þá sögðust þrír af hverjum fjórum frekar velja ástina en auð ef þeir þyrftu að gera upp á milli.

Mikill munur reyndist þó vera á milli ríkja í Bandaríkjunum þegar kom að því hvenær fólk taldi sig hafa náð hámarki lífsánægju. Í Maryland og Mississippi sögðust þátttakendur hafa verið hamingjusamastir um 37 ára aldur, en í Kaliforníu og New York var meðalaldurinn 57 ár.

Höfundar könnunarinnar segja niðurstöðurnar benda til þess að hamingja tengist síður miklum auði eða frama en stöðugleika, góðri heilsu og sterkum tengslum við fjölskyldu og vini.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur