fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Pressan

Óvæntur glaðningur fylgdi gjafasæðinu

Pressan
Sunnudaginn 10. maí 2026 21:00

Óvæntur glaðningur fylgdi sæðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gleymdu öllu um Tinder-stefnumót sem enda í vandræðalegri þögn yfir kaffibolla. Aminah Hart, frá Ástralíu,hefur miklu áhugaverðari sögu að segja, sögu sem fær stefnumótaöpp til að líta út eins og algjöra tímaeyðslu.

Hún pantaði sér sæði, til að geta eignast barn, en endaði með að finna hina einu sönnu ást.

Líf hennar hafði ekki verið neinn dans á rósum. Hún missti tvo syni sína, Marlon og Louis, vegna sjaldgæfs erfðasjúkdóms sem hún vissi ekki að hún bæri með sér.

Eftir tvö misheppnuð ástarsambönd og sorg, sem fæstir geta ímyndað sér, stóð þessi 42 ára kona ein

Hún var ekki reiðubúin til að gefa drauminn um barneignir upp á bátinn. Eftir að hafa farið í nákvæma erfðafræðirannsókn gáfu læknar henni grænt ljós á að reyna að eignast barn. Hún ákvað að gera það ein og leitaði því að hentugum sæðisgjafa. Hún fann hann, mann að nafni Scott Andersen, í ástralskri skrá yfir sæðisgjafa.

Níu mánuðum síðar fæddist Leila. Hún var heilbrigð og laus við erfðagallana sem urðu bræðrum hennar að bana.

En sögunni lauk ekki við fæðingu Leila

Þegar móðir Aminah sannfærði hana um að setja sig í samband við Scott, gerðist svolítið sem engin sá fyrir.

Scott hafði allan tímann haft áhuga á að hitta konuna sem vildi fá sæði hans. Þegar þau hittust augliti til augliti áttuðu þau sig strax á að þeim féll vel við hvort annað.

Það sem hófst sem kurteislegur hittingur tveggja „líffræðilegra foreldra“ þróaðist fljótt yfir í svolítið annað. Þau byrjuðu að hittast reglulega og neistinn varð fljótlega að stóru ástarbáli.

„Við urðum ástfangin. Þetta var svo súrrealískt  en ótrúleg upplifun,“ sagði Aminah síðar.

Þessu lauk ekki með stefnumótum þeirra því þau trúlofuðust og gengu síðar í hjónaband.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar
Pressan
Í gær

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti
Pressan
Í gær

Shoigu sagður ógn við Pútín

Shoigu sagður ógn við Pútín
Pressan
Í gær

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þeir sem sofa með svefnherbergisdyrnar lokaðar eiga þetta sameiginlegt

Þeir sem sofa með svefnherbergisdyrnar lokaðar eiga þetta sameiginlegt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þúsundir Bandaríkjamanna gætu misst vegabréfið vegna ógreiddra meðlaga

Þúsundir Bandaríkjamanna gætu misst vegabréfið vegna ógreiddra meðlaga
Pressan
Fyrir 2 dögum

Martröð á mæðradegi: Nýjar vendingar í einu umtalaðasta sakamáli Bandaríkjanna

Martröð á mæðradegi: Nýjar vendingar í einu umtalaðasta sakamáli Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 3 dögum

FBI-liðar uggandi yfir meintum hefndaraðgerðum Kash Patels vegna frétta um áfengisdrykkju hans

FBI-liðar uggandi yfir meintum hefndaraðgerðum Kash Patels vegna frétta um áfengisdrykkju hans