fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Pressan
Mánudaginn 11. maí 2026 14:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimamanni á Hawaii hefur verið hampað sem hetju eftir að hann réðst á ferðamann sem kastaði grjóti í átt að vernduðum munkasel við strendur Maui-eyju.

Atvikið átti sér stað í Lahaina á þriðjudag þegar 37 ára ferðamaður frá Seattle er sagður hafa nálgast selinn, sem kallast Lani meðal heimamanna, og kastað stórum steini í átt að dýrinu þar sem það synti nærri landi.

Eftir að myndband af athæfi ferðamannsins fór í dreifingu brugðust margir ókvæða við. Samkvæmt New York Post komust heimamenn að því hvar ferðamaðurinn hélt sig og réðst að minnsta kosti einn þeirra á manninn og sló hann ítrekað. Myndskeið af barsmíðunum fór einnig hratt í dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem margir sögðu ferðamanninn hafa hlotið makleg málagjöld.

Öldungadeildarþingmaðurinn Brenton Awa vakti einnig athygli á málinu á fundi ríkisins þar sem hann sýndi sérstakt viðurkenningarbréf ætlað hinum ónafngreinda heimamanni.

Hann tók þó fram að yfirvöld hvettu ekki til ofbeldis, en sagði jafnframt að margir ferðamenn sýndu náttúru og dýralífi Hawaii ekki nægjanlega virðingu.

Ferðamaðurinn var handtekinn og færður til yfirheyrslu eftir atvikið en síðar sleppt eftir að hafa óskað eftir lögfræðiaðstoð. Engar ákærur hafa enn verið gefnar út, en málið hefur verið sent alríkisyfirvöldum til frekari rannsóknar vegna mögulegra brota á bandarískum lögum um vernd sjávarspendýra.

Samkvæmt lögunum getur brot gegn vernduðum munkaselum varðað allt að 50 þúsund dollara sekt og fangelsisrefsingu.

Borgarstjóri Maui, Richard Bissen, fordæmdi hegðun ferðamannsins harðlega í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum.

„Þetta er ekki sú tegund ferðamanna sem við viljum sjá á Maui. Við bjóðum velkomna gesti sem sýna menningu okkar, náttúru og dýralífi virðingu,“ sagði hann.

Munkaselurinn Lani hefur á síðustu árum orðið tákn endurreisnar samfélagsins í Lahaina eftir mannskæða skógarelda sem lögðu stóran hluta bæjarins í rúst árið 2023. Heimamenn hafa fylgst náið með selnum og líta á hann sem mikilvægan hluta samfélagsins.

Myndband af atvikunum má sjá á Instagram-síðu Brenton Awa hér að neðan:

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Brenton Awa (@brentonawa)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Ný veira gæti borist úr matnum í augu

Ný veira gæti borist úr matnum í augu
Pressan
Í gær

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman
Pressan
Í gær

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilja fangelsa meintan morðingja Madeleine McCann á ný

Vilja fangelsa meintan morðingja Madeleine McCann á ný
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hylltur sem hetja eftir hryðjuverkaárás – nú sakaður um árás á föður sinn

Hylltur sem hetja eftir hryðjuverkaárás – nú sakaður um árás á föður sinn