fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Pressan

Stjörnukokkur dæmdur til dauða fyrir voðaverk á jólunum

Pressan
Þriðjudaginn 12. maí 2026 06:00

Anthony með Iris og Nigel.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anthony Milan Ross, fyrrverandi stjörnukokkur í Arizona, hefur verið dæmdur til dauða fyrir að hafa myrt fyrrverandi eiginkonu sína og tvö ung börn þeirra á jóladag árið 2017.

Dómurinn féll tæpum sex mánuðum eftir að kviðdómur sakfelldi hann fyrir morðin sem vöktu mikinn óhug í Bandaríkjunum.

Endanleg refsing var kveðin upp á fimmtudag en Ross var dæmdur fyrir morðin á Iris Ross, 38 ára, og börnum þeirra, Nigel, 11 ára, og Anoru, sem var aðeins átta mánaða þegar hún var skotin til bana. Morðin voru framin þann 25. desember 2017 í Phoenix í Arizona.

Samkvæmt ákæru hafði Iris Ross farið að íbúð fyrrverandi eiginmanns síns til að sækja börnin svo fjölskyldan gæti haldið jól. Þar átti sér stað samtal um samband þeirra og tjáði hún Ross skýrt að hún hygðist ekki taka við honum aftur.

Anthony Milan Ross

Ross brást ókvæða við og hóf skothríð. Saksóknarar segja að hann hafi skotið Iris ítrekað þegar hún reyndi að flýja og síðan staðið yfir henni og skotið fleiri skotum eftir að hún féll til jarðar.

Að því loknu fór Ross inn í íbúðina þar sem hann myrti börn þeirra tvö. Yfirvöld segja að Nigel hafi reynt að verja sig með því að bera hendur fyrir höfuð sér áður en hann var skotinn.

Málið vakti sérstakan óhug vegna myndbands sem Ross birti á samfélagsmiðlum kvöldið fyrir morðin. Þar sést hann syngja jólalagið „Santa Claus is Coming to Town“ ásamt Nigel.

Eftir skotárásina lokaði Ross sig inni í íbúðinni og sat lögregla um heimilið í fleiri klukkustundir. Umsátrinu lauk með skotbardaga milli hans og lögreglumanna.

Ross var á sínum tíma þekktur í Arizona sem vegan-kokkur, fyrirlesari og frumkvöðull. Hann hafði skrifað matreiðslubækur og komið fram í fjölmiðlum vegna mikils þyngdartaps og heilsulífsstíls.

Saksóknarar héldu því fram í réttarhöldunum að hann hefði orðið sífellt óstöðugri eftir að eiginkona hans sótti um skilnað árið 2017. Við réttarhöldin kom einnig fram að hann hefði leitað á netinu að upplýsingum um skotvopn, notkun hljóðdeyfa og um morð sem framin voru á jólunum.

Vörn Ross byggðist á því að hann hefði verið í mjög alvarlegri andlegri krísu, glímt við þunglyndi, svefnleysi og áfengisfíkn þegar morðin voru framin. Það dugði þó ekki til að sannfæra kviðdómendur um að hlífa honum við dauðarefsingunni.

Rachel Mitchell, ríkissaksóknari í Maricopa-sýslu, sagði eftir dómsuppkvaðninguna að Ross hefði átt að vernda fjölskyldu sína en í stað þess tekið meðvitaða ákvörðun um að svipta hana lífi þegar eiginkona hans vildi ekki hefja samband við hann á ný. Hún sagði dóminn endurspegla alvarleika verknaðarins og að réttlæti hefði nú náðst fyrir fórnarlömbin þrjú.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Vitnisburður sjö ára drengs sendi móður hans í lífstíðarfangelsi

Vitnisburður sjö ára drengs sendi móður hans í lífstíðarfangelsi
Pressan
Í gær

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran