
Sálfræðingurinn Jeffrey Bernstein leggur til ótrúlega einfalda aðferð til að stöðva þetta mikla hugsanaflæði og það þarf bara 7 orð til þess: „Þessa hugsun get ég vel látið bíða.“
Þetta er enginn kraftaverkakúr, bara lítil og vinsamlega áminning til þín um að klukkan þrjú að nóttu er yfirleitt ekki besti tíminn til að finna lausnir á stóru og litlu vandamálum lífsins. Miðillinn Jenny skýrir frá þessu.
Bernstein segir að þessi setning virki eins og einhverskonar andleg bremsa. Þú reynir ekki að ýta hugsuninni í burtu eða berja hana niður, þú frestar henni á kurteisan hátt.
Þetta snýst um að þjálfa heilann í að taka sér pásu og það er mjög mikilvægt því svona næturhugsanir hafa yfirleitt ekkert annað í för með sér en svefnleysi og meiri vangaveltur næsta dag.
„Þessa hugsun get ég vel látið bíða,“ er nógu stutt til að þú getir munað setninguna um miðja nótt og nógu sterk til að skapa ró.
Þú getur meira að segja tengt setninguna við andardráttinn þinn. Hluti af henni þegar þú andar inn og hluti þegar þú andar frá þér. Endurtekur þetta oft.
Og það allra mikilvægasta – Ekki lenda í hinni klassísku gildru, sem mjög margir lenda í, með því að teygja þig í farsímann. Skjárinn og blátt ljós gera ekki annað en að fæla þig enn lengra frá svefninum.
Það er ekkert óeðlilegt við að vakna á nóttunni. Málið er bara hvernig þú bregst við því. Þegar þú vaknar næst um nótt og hugsanirnar sækja á þig, veifaðu þeim vinsamlega og hvíslaðu: „Þessa hugsun get ég vel látið bíða.“