fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Ók bíl inn í hóp fólks um helgina – 26 ára gamall maður er nú látinn

433
Fimmtudaginn 14. maí 2026 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í Nottinghamshire á Englandi hefur hafið morðrannsókn eftir að 26 ára gamall knattspyrnumaður lést af sárum sínum nokkrum dögum eftir að ekið var á hóp gangandi vegfarenda í bænum Arnold.

Tyler Fairman varð fyrir bílnum ásamt fjórum öðrum skömmu eftir klukkan eitt aðfaranótt laugardags. Hann var fluttur á sjúkrahús með lífshættulega áverka en lést á þriðjudag. Hinir fjórir slösuðust minna alvarlega.

Duane Anthony, sem er 40 ára, hefur verið ákærður fyrir fimm tilraunir til manndráps, auk fleiri umferðarlagabrota. Eftir andlát Fairman hefur rannsókn málsins nú verið breytt í morðrannsókn.

Fairman lék með utandeildarliðinu Woodthorpe Park Rangers og staðfesti félagið að tveir leikmenn og einn þjálfari hefðu orðið fyrir bílnum.

Lögreglan hefur jafnframt hvatt fólk til að eyða myndböndum af atvikinu sem hafa farið í dreifingu á samfélagsmiðlum svo fjölskylda Fairman fái frið til að syrgja.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik
433Sport
Í gær

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið