

Iker Casillas, fyrrum fyrirliði Real Madrid, hefur lýst yfir andstöðu sinni við að José Mourinho verði ráðinn aftur sem knattspyrnustjóri félagsins.
Mourinho er sterklega orðaður við endurkomu til Real Madrid, þrettán árum eftir að hann yfirgaf félagið eftir stormasamt tímabil á Santiago Bernabéu. Samband hans við nokkra leikmenn liðsins var erfitt á þeim tíma og þar á meðal við Casillas.
Í lokaári Mourinho hjá Real Madrid missti Casillas sæti sitt sem aðalmarkvörður liðsins, sem vakti mikla athygli og skapaði spennu innan félagsins.
Casillas segir þó að hann beri enga persónulega óvild í garð Portúgalans, en telji einfaldlega að aðrir þjálfarar henti félaginu betur í dag.
„Ég á ekkert í útistöðum við Mourinho. Mér finnst hann vera frábær fagmaður,“ skrifaði Casillas á samfélagsmiðlinum X.
„Ég vil hins vegar ekki sjá hann hjá Real Madrid. Ég held að aðrir þjálfarar séu betur til þess fallnir að stýra félagi lífs míns,“ bætti markvarðargoðsögnin við.
Ummælin hafa vakið mikla athygli á Spáni enda er framtíð stjórastólsins hjá Real Madrid mikið hitamál. Florentino Pérez forseti félagsins er sagður íhuga mögulega endurkomu Mourinho eftir óstöðugt tímabil hjá liðinu.