fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Pressan

Ellilífeyrisþegi handtekinn fyrir morð sem ekki var framið

Pressan
Miðvikudaginn 13. maí 2026 07:00

Castel Gardens í Leicester. Mynd: Google Maps.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

79 ára gamall ellilífeyrisþegi í Leicester á Englandi var handtekinn, grunaður um morð og haldið í fangaklefa í 15 klukkustundir, áður en í ljós kom að hinn látni hafði ekki verið myrtur heldur látist vegna veikinda.

Bobby Carmichael segir að líf hans hafi orðið að martröð er hann og vinkona hans voru handtekin í kjölfar þess að vinkona tilkynnti um líkfund í almenningsgarðinum Castle Gardens í Leicester.

Vinkona Bobbys er 46 ára gömul. Þau voru á ferð í bíl hans þegar hún bað hann um að stöðva við garðinn því hún hefði glatað þar dúkku. Inni í garðinum fann hún hins vegar, auk dúkkunnar. látinn mann og tilkynnti líkfundinn til lögreglu. Á þeirri stundu vissu Bobby og vinkona hans ekki hver hinn látni var en síðar kom í ljós að um var að ræða gamlan vin Bobbys.

Bobby og vinkona hans fóru heim til til Bobbys eftir að hafa tilkynnt um líkfundinn en þar bankaði lögregluna á dyrnar um kvöldið, er parið sat inni í stofu og horfði á sjónvarpið. Voru þau bæði handtekin, grunuð um morð. Bobby sat í fangaklefa í 15 klukkustundir eða þar til rannsókn á líkinu leiddi í ljós að hinn látni hafði látist af sjúkdómi en ekki verið ráðinn bani.

Var þeim þá sleppt úr haldi og þau beðin afsökunar. Lögreglan í Leicester segir við fjölmiðla að aðgerðir í málinu hafi verið eðlilegar miðað við þær upplýsingar sem þá voru fyrirliggjandi.

Nánar má lesa um málið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“
Pressan
Í gær

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hatur í garð ferðamanna á Tenerife – „Kill Tourists“

Hatur í garð ferðamanna á Tenerife – „Kill Tourists“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfreyja varar alla sem nota sætisborðin við

Flugfreyja varar alla sem nota sætisborðin við
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svíar hyggjast fangelsa börn frá 13 ára aldri vegna gengjaofbeldis

Svíar hyggjast fangelsa börn frá 13 ára aldri vegna gengjaofbeldis
Pressan
Fyrir 4 dögum

Afhjúpa sterk viðbrögð Obama við Brexit: „Þið hafið f**** ykkur“

Afhjúpa sterk viðbrögð Obama við Brexit: „Þið hafið f**** ykkur“