fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Enginn mætti til að syrgja Ian Huntley

Pressan
Mánudaginn 11. maí 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barnamorðinginn Ian Huntley hefur verið brenndur í kyrrþey án þess að nokkur syrgði hann, samkvæmt umfjöllun breska götublaðsins The Sun.

Huntley lést 52 ára að aldri í mars síðastliðnum eftir alvarlega árás í fangelsinu HMP Frankland í Durham-sýslu á Englandi. Hann var barinn til óbóta með málmstöng af samfanga sínum og lést af sárum sínum nokkrum dögum eftir árásina.

Hann afplánaði lífstíðardóm fyrir morðin á Holly Wells og Jessica Chapman í Soham árið 2002, en stúlkurnar voru aðeins tíu ára gamlar. Málið er eitt það umtalaðasta í breskri réttarfarssögu á síðustu áratugum.

Samkvæmt The Sun var lík Huntleys flutt frá Royal Victoria-sjúkrahúsinu í Newcastle í líkbrennslu í nágrenninu eftir andlát hans. Fjölskyldu hans stóð til boða styrkur fyrir útförinni að verðmæti um 3.000 punda, um 500 þúsund króna, en hún hafnaði boðinu af virðingu við aðstandendur fórnarlamba hans.

„Það var engin útför, engin athöfn og engir syrgjendur,“ hafði blaðið eftir heimildarmanni.

Sá sami sagði jafnframt: „Fjölskyldan var samstíga, hvernig hefði hann getað fengið útför eftir það sem hann gerði?“

Þá kom einnig fram að hugsanir fjölskyldunnar væru áfram hjá fórnarlömbunum og aðstandendum þeirra.

„Hann var brenndur og það var allt og sumt, ekkert meira,“ sagði heimildarmaðurinn samkvæmt The Sun.

Ösku Huntleys var síðar dreift á leynilegum stað af ættingja hans.

Dánarrannsókn sem hófst í síðasta mánuði komst að þeirri niðurstöðu að Huntley hefði látist af völdum höfuðáverka eftir barefli. Frekari rannsókn verður framkvæmd þegar sakamál gegn meintum árásarmanni hans, Anthony Russell, lýkur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Ný veira gæti borist úr matnum í augu

Ný veira gæti borist úr matnum í augu
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Svefntilraun unglinganna hafði alvarlegar afleiðingar

Svefntilraun unglinganna hafði alvarlegar afleiðingar
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Í gær

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum