
Málið skók Bandaríkin á sínum tíma en fjórar stúlkur á aldrinum 13 til 17 ára fundust myrtar í jógúrtbúðinni I Can’t Believe It’s Yogurt í desember 1991. Þær höfðu verið bundnar og skotnar til bana áður en verslunin var síðan brennd til grunna. Tvær stúlknanna voru starfsmenn verslunarinnar.
Árið 1999 handtók lögreglan fjóra unga menn vegna málsins: Robert Springsteen, Michael Scott, Forrest Welborn og Maurice Pierce. Tveir þeirra voru dæmdir, meðal annars á grundvelli játninga sem þeir sögðu síðar að hafi verið þvingaðar fram. Scott hlaut dauðadóm og Springsteen hlaut lífstíðardóm.
Welborn var aldrei dæmdur og ákærur gegn Pierce voru síðar felldar niður.
Dómar Springsteen og Scott voru felldir úr gildi á árunum 2006 og 2008 eftir að áfrýjunardómstólar töldu málsmeðferðina gallaða. Ný DNA-rannsókn árið 2009 benti jafnframt til þess að annar maður hefði komið að morðunum. Þrátt fyrir það tók það yfir áratug að hreinsa mennina formlega af öllum grun.
Það var ekki fyrr en á síðasta ári að lögregluyfirvöld í Austin tilkynntu að ný erfðatækni hefði tengt raðmorðingjann Robert Eugene Brashers við morðin. Brashers þessi framdi sjálfsvíg árið 1999 eftir umsátur lögreglu í Missouri, en DNA-sýni og endurskoðun skotvopnagagna leiddu síðar til þeirrar niðurstöðu að hann hefði einn framið morðin.
Í febrúar á þessu ári lýsti dómari mennina fjóra formlega saklausa. Nú hefur borgin Austin samið um skaðabætur við þá sem eftir lifa og fjölskyldu Maurice Pierce, sem lést árið 2010 eftir að hafa setið inni í þrjú ár vegna málsins.
Borgarstjórinn í Austin, T.C. Broadnax, sagði samkomulagið marka lokakaflann í þessu sorglega máli. Þá hafa lögmenn mannanna kallað eftir umbótum á rannsóknaraðferðum lögreglu og auknum vörnum gegn fölskum játningum og röngum sakfellingum.