fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Pressan

Trump sagður hafa augastað á nýju landi til að gera að 51. ríki Bandaríkjanna

Pressan
Mánudaginn 11. maí 2026 22:00

Donald Trump Bandaríkjaforseti. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseta dreymir um að stækka Bandaríkin ef marka má ítrekaðar yfirlýsingar hans um að bæta við 51. ríkinu. Eftir að hann tók aftur við embætti hefur hann meðal annars hótað því að innlima Kanada, Kúbu, Panama sem og Grænland, þvert á vilja þessara þjóða sem kæra sig ekki um að verða ríki í Bandaríkjunum. Nú mun Trump vera kominn með enn eina innlimunarhugmyndina. Að þessu sinni beinir hann spjótum sínum að Venesúela.

Fjölmiðlamaðurinn John Roberts hjá Fox-fréttastofunni skrifar á samfélagsmiðlinum X í dag:

„Var að ljúka símtali við Donald Trump og hann sagðist vera alvarlega að íhuga að gera Venesúela að 51. ríkinu….“

Bandaríkjaher handtók forseta Venesúela, Nicolás Maduro, á heimavelli í byrjun árs fyrir meinta glæpi hans gegn bandarísku þjóðinni. Bandaríkin gerðu í kjölfarið kröfur um aðkomu að olíuauðlindum þjóðarinnar og hafa haft milligöngu um samningaviðræður við bandarísk orkufyrirtæki. Independent bar orð fréttamannsins undir embætti forsetans en í yfirlýsingu samskiptafulltrúans Olivia Wales segir að samskipti ríkjanna tveggja hafi aldrei verið betri.

„Olían er farin að flæða sem og gríðarlegt magn af peningum, sem ekki hafa sést svo árum skipti, mun bráðum hjálpa frábæru þjóðinni í Venesúela. Það er aðeins Trump forseta að þakka að hafa endurlífgað þetta góða samstarf ríkjanna – og það besta er enn ókomið.“

Starfandi forseti Venesúela, Delcy Rodriguez, segir í samtali við France24  að Venesúela hafi aldrei haft það til skoðunar að ganga í Bandaríkin.

„Það hefur komið til umræðu því ef það er eitthvað sem við konurnar og karlarnir í Venesúela höfum þá er það ást okkar til lýðræðis okkar, við elskum sjálfstæðishetjurnar okkar.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Vitnisburður sjö ára drengs sendi móður hans í lífstíðarfangelsi

Vitnisburður sjö ára drengs sendi móður hans í lífstíðarfangelsi
Pressan
Í gær

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran