fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Nágrannaerjur á Kjalarnesi – Fær ekkert að hafa um það að segja að nágranninn reisi gistiheimili

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 14. maí 2026 08:00

Frá Kjalarnesi. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eigandi og ábúandi jarðar á Kjalarnesi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann lagði fram kæru, til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, vegna framkvæmda á nærliggjandi jörð en þar stendur til að reisa meðal annars gistiheimili. Vísaði nefndin kærunni frá ekki síst á þeim forsendum að of langt væri á milli framkvæmdanna og heimilis kærandans til að hann ætti einhverra hagsmuna að gæta af því að hafa eitthvað um framkvæmdir nágranna síns að segja.

Kærði hinn ósátti nágranni þá ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar frá september 2024 að samþykkja umsókn um byggingarleyfi fyrir gistiheimili, gróðurhúsi og geymsluskúr á jörð nágranna hans.

Jörð nágrannans, sem sótti um leyfið, er á svæði sem hefur ekki verið deiliskipulagt. Byggingarfulltrúi leitaði umsagnar skipulagsfulltrúa sem taldi óþarft að láta grenndarkynningu fara fram enda væri framkvæmdin ekki talin varða hagsmuni annarra en umsækjandans.

Kærandinn taldi hins vegar að ekki lægi fyrir skýr ákvörðun um leyfisveitingu eða heimild fyrir þeim framkvæmdum sem ættu sér stað á jörð nágranna hans. Þá lægi ekki fyrir hvort gildandi skipulag heimilaði fyrirhugaða starfsemi, en framkvæmdirnar væru umfangsmiklar og fælu í sér breytta landnotkun sem krefðist skýrra skipulagsheimilda samkvæmt skipulagslögum. Starfsemin hefði í för með sér aukna umferð, álag og röskun á viðkvæmu náttúru- og útivistarsvæði og svæðis sem skilgreint væri sem landbúnaðarsvæði.

Minni

Í andsvörum Reykjavíkurborgar kom fram að í tilefni af fyrirspurnum frá kærandanum hafi öll gögn málsins verið skoðuð ítarlega. Við nánari skoðun á aðaluppdráttum hafi komið í ljós texti um gististað í flokki III. Hið útgefna byggingarleyfi hafi því ekki verið í samræmi við gildandi skipulag. Byggingarfulltrúi hafi þá stöðvað framkvæmdir. Í kjölfarið hafi leyfishafi brugðist við og sent embætti byggingarfulltrúa uppfærða aðaluppdrætti þar sem flokkun gististaðar hafi verið breytt úr flokki III í flokk II. Breytingarerindið hafi verið samþykkt á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Þá hafi í kjölfarið stöðvun framkvæmda verið afturkölluð með bréfi.

Munurinn á gististöðum í flokki II og III er að í þeim fyrrnefnda er ekki boðið upp á veitingar en í þeim síðarnefnda eru veitingar í boði, að áfengi undanskildu.

Í niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála segir að byggingarleyfi, ásamt síðari breytingum, sem hafi verið kært feli í sér heimild til niðurrifs geymsluhúss og að í stað þess verði reist gistiheimili með átta herbergjum. Jafnframt feli leyfið í sér heimild til að byggja geymslu og gróðurhús. Við mat á því hvort ákvörðunin um að veita leyfið raski einstaklingsbundnum og verulegum hagsmunum kæranda verði m.a. að líta til fjarlægðar fasteignar kærandans frá hinum fyrirhuguðu framkvæmdum en ljóst sé að þær muni standa í nokkurri fjarlægð frá eigninni. Þyki framkvæmdirnar vera þess eðlis að grenndarhagsmunum kærandans sé ekki raskað með slíkum hætti að það teljist til verulegra hagsmuna hans. Þar af leiðandi sé ekki til staðar lagaheimild fyrir því að umræddur kærandi geti kært framkvæmdirnar til nefndarinnar.

Á þeim grundvelli vísar nefndin málinu frá en kærandinn verður þá að snúa sér til dómstóla ef hann er ekki tilbúinn til að sætta sig við úrskurð nefndarinnar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar