
Sálfræðingurinn Mark Travers, sem einbeitir sér að rannsóknum á ástarsamböndum, ráðleggur fólki að gæta þess alltaf að koma með eitthvað nýtt og skemmtilegt inn í ástarsamböndin.
Sem betur fer er hægt að finna skemmtilegheit í margvíslegum formum, stærðum og verðflokkum. Það þarf nefnilega ekki að kosta svo mikið að gera eitthvað skemmtilegt saman sem par.
CNBC skýrir frá þessu og segir að samkvæmt því sem Travers segi þá geri hamingjusömustu pörin eftirfarandi hluti saman.
Þau fara í „litla ævintýraferð“ – Það eru ekki öll pör sem hafa tíma, eða hafa efni á, að hoppa upp í flugvél þegar þau þurfa tilbreytingu. En þetta aftrar ekki hamingjusömum pörum frá að finna ævintýri. Þau gera það bara á heimaslóðum.
Rannsókn ein leiddi í ljós að „lítil ævintýri“ á borð við að vera heima í fríi, fara í dagsferðir eða heimsækja nýja kaffihúsið í bænum geta veitt jafn mikla gleði og að fara í burtu í langt frí.
Hamingjusömu pörin skoða bæinn sinn eins og ferðamenn. Þau fara í gönguferðir, fara í bókabúðir, söfn eða skoða áhugaverða staði. Markmiðið er að gera það „venjulega“ nýtt og spennandi.
Þau stunda áhugamál sín hlið við hlið – Annað elskar að lesa. Hitt elskar að spila tölvuleiki. Þetta þarf ekki að vera slæm blanda og raunar getur þetta farið vel saman ef parið gerir þetta saman en samt hvort fyrir sig.
Sálfræðingar kalla þetta „samhliða leik“ þar sem pör gera hvort sinn hlutinn en í sama rýminu. Þetta snýst ekki um að neyðast til að finna sameiginleg áhugamál, heldur um að skapa grundvöll til að vera saman.
Afraksturinn er að pörin geta auðveldlega varðveitt tenginguna sín á milli án þess að verða örmagna.
Þau finna tíma fyrir „hlutinn þeirra“ – Það er mikilvægt að hafa eigin áhugamál en rannsóknir hafa sýnt fram á að sameiginleg áhugamál og venjur tengjast sterklega ánægju í ástarsamböndum.
Þetta þýðir ekki að fólk þurfi að stofna hlaðvarp saman eða æfa fyrir maraþon (nema því langi til þess). Fyrir flesta er nóg að spila kannski eitt kvöld í viku, fara í göngutúr á sunnudögum eða horfa saman á sjónvarpsþáttaröð.
Markmiðið er samræmi. Þessar sameiginlegu litlu venjur verða að einhverju sem fólk hlakkar til, óháð því hversu mikið annríki það glímir við.
Þau breyta leiðinlegum verkefnum í leik – Innkaup, þvottur, uppvaskið. Ekki beinlínis rómantísk verkefni. Fyrir önnum kafin pör getur verið erfitt að finna tíma fyrir eitthvað skemmtilegt. Þess vegna telja vísindamenn að rétt sé að setja leik og leikræna hegðun í forgang.
Hamingjusömustu pörin ná að „stela“ því sem einkennist af rútínu. Ef þau eru með leiðinlegt verkefni, finna þau lagalista eða þátt sem gerir það skemmtilegra. Ef þau eru úti að sinna erindum, gera þau litla leiki eða keppni úr því.
Þau sjá til þess að hlátur og léttleiki sé alltaf hluti af hversdeginum, meira að segja þegar skylduverkefnin kalla á þau.
Þau passa upp á gamlar hefðir – Manstu eftir fyrsta stefnumótinu ykkar? Manstu eftir einkabrandaranum ykkar? Eða laginu sem var einu sinni „lagið ykkar“? Margir rifja upp upphaf ástarsambandsins og muna hversu auðvelt og skemmtilegt allt var. En hamingjusöm pör vita að tilfinningin frá þeim tíma þegar ástin tók völdin, getur haldið áfram ef maður velur að halda fast í hana.
Rannsóknir hafa sýnt að venjur gegna mikilvægu hlutverki þegar kemur að því að fólk sé ánægt, gæðum sambandsins og nándinni í sambandinu.
Að tala, dreyma og grínast með makanum á sama leikandi hátt og í upphafi sambandsins heldur sambandinu skemmtilegu og heiðrar um leið það ferðalag sem parið hefur farið saman.