fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Pressan

Við þessar aðstæður er best að þegja og ganga á brott

Pressan
Laugardaginn 9. maí 2026 17:30

Hún virðist hafa fengið meira en nóg af þessu öllu saman.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimurinn í dag er þannig uppbyggður að við erum sífellt hvött til að svara, bregðast við einhverju, verja sjónarmið okkar eða útskýra afstöðu okkar eða ummæli. En stundum getur verið best að gera hið þveröfuga og segja ekki neitt.

Sálfræðingar og aðferðarsérfræðingar eru sammála um að í vissum aðstæðum sé þögn og rólegt brotthvarf ekki bara aðferð til að lifa af, heldur einnig til að vernda sjálfan sig og sýni tilfinningalega greind og um leið að þú setjir ákveðin mörk.

Óháð því hvort þú forðast drama á samfélagsmiðlum, stendur andspænis einhverjum í tilfinningalegu öngþveiti eða kýst frið frekar en smámuni, þá er gott að vita hvenær er best að þegja og draga sig í hlé.

Í umfjöllun VegOut kemur fram að við eftirfarandi aðstæður sé best að þegja og draga sig í hlé.

Þegar kommentakerfið verður átakasvæði – Saklaust tjákn og skyndilega öskrar einhver með stórum bókstöfum. Rannsóknir sýna að hin svokölluðu „tröll“ leita að athygli en ekki lausnum. Lokaðu síðunni, settu rólega tónlist á og láttu algóryþmann rífast við sjálfan sig.

Þegar einhver eru drukkinn og stjórnlaus – Áfengi skerðir hvatastjórnun fólks og gerir það árásargjarnt. Það er öruggast að halda ákveðinni fjarlægð, lækka röddina eða bara láta sig hverfa af vettvangi.

Þegar maki þinn er tilfinningalega útkeyrður – The Gottmann Institute segir að rök virki ekki þegar líkaminn er í viðbragðsstöðu. Taktu 20 mínútna pásu frá umræðum og gættu þess að það ríki fullkomin ró.

Þegar skrifstofuslúðrið byrjar – Að hlusta gerir þig samsekan. Rannsóknir hafa sýnt að bæði þeir sem standa fyrir slúðrinu og þeir sem hlusta glata trúverðugleika. Gakktu á brott og láttu slúðrið visna.

Þegar reiðir ökumenn stara – Augnsamband og líkamstjáning getur gert ástandið verra. Forðastu augnsamband, hafðu rúðurnar uppi og breyttu um akstursleið ef það er hægt. Þögnin er andlegur öryggisakstur.

Þegar reiði ókunnugra virðist ófyrirsjáanleg – Reiður viðskiptavinur? Var ýtt við þér í strætó? Einblíndu á eigið öryggi, haltu þig í góðri fjarlægð, talaðu lágt og yfirgefðu staðinn.

Þegar samtalið verður að gaslýsingu – Gaslýsing nærist á þátttöku. Settu mörk, til dæmis „Þessu samtali lýkur núna“, og gakktu á brott.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Heilaþoka“ eftir McDonald’s-máltíð talin mögulegur þáttur í banaslysi þriggja lögreglumanna

„Heilaþoka“ eftir McDonald’s-máltíð talin mögulegur þáttur í banaslysi þriggja lögreglumanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta kom lögreglu á spor FedEx-morðingjans – „Þú tókst ekki bara líf, þú eyðilagðir fjölskyldu“

Þetta kom lögreglu á spor FedEx-morðingjans – „Þú tókst ekki bara líf, þú eyðilagðir fjölskyldu“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Flugfreyja hjá British Airways lögsótt fyrir að mæta drukkin í flug

Flugfreyja hjá British Airways lögsótt fyrir að mæta drukkin í flug
Pressan
Fyrir 4 dögum

Eiga yfir höfði sér 30 ára fangelsi í Tyrklandi

Eiga yfir höfði sér 30 ára fangelsi í Tyrklandi
Pressan
Fyrir 5 dögum

Drukkinn maður pantaði sér skyndibita, sofnaði og var svo sakaður um kynferðisbrot – Konan svarar nú til saka

Drukkinn maður pantaði sér skyndibita, sofnaði og var svo sakaður um kynferðisbrot – Konan svarar nú til saka
Pressan
Fyrir 5 dögum

Er það núna sem Pútín er hættulegastur?

Er það núna sem Pútín er hættulegastur?