
Þetta segir Valter Longo, læknir og forstjóri Longevity Institue við University of Southern California. Hann telur að fólk geti lengt lífið með því að fylgja ýmsum afgerandi prinsippum.
Regluleg hreyfing og jafnvægi í mataræðinu þar sem næringarríkur matur leikur stórt hlutverk er stór og mikilvægur hluti af ráðleggingum hans. En hann segir einnig að það sé mjög mikilvægt að halda aftur af sér þegar kemur að fiskneyslu.
Þetta kemur eflaust mörgum á óvart enda er fiskur nú yfirleitt hafinn upp til skýjanna sem hollur matur. Longo segir að fullorðnir eigi ekki að borða meira en tvo til þrjá skammta af fiski á viku.
Express segir að hann hafi skrifað í bloggfærslu að best sé að borða aðallega mat úr jurtaríkinu og smávegis fisk. „Veljið fisk og skeldýr sem innihalda mikið af omega-3, omega-6 og B 12 -vítamíni (lax, ansjósur, sardínur, þorskur, urriði og rækjur svo eitthvað sé nefnt). Gætið að gæðum fisksins og veljið tegundir sem innihalda lítið af kvikasilfri,“ skrifaði hann.